Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Við vorum 12 ára“: Segir dóttir Guðbjörns ekki eina fórnarlambið: „Byrlarinn í MH“ sonur elítunnar

„Ég titra við að skrifa þetta og finnst eins og hendurnar virki ekki. Las grein í dag sem sagði frá því að 16 ára stelpa hefði tekið sitt eigið líf eftir að hafa verið nauðgað og kært og hann sýknaður. Þetta eyðilagði lífið hennar. Þetta er ekki fyrsta kæran á hann.“

Þetta skrifar Júlía Hrefna Rokk Bjarna­dóttir leik­stjóri á Twitter en hún opnar sig þar um kynferðis­brot, líkt og ótal aðrar konur hafa gert undan­farnar daga eftir að önnur Metoo-bylgja braust út. Byrjun bylgjunnar má rekja til frétta Mannlífs.

Færsla Guðbjörns Guðbjörns­sonar á föstu­daginn vakti mikla athygli en þar sagði hann sögu dóttur sinnar, Sólveigar Elísabetar. Hún svipti sig lífi árið 2019 en Guðbjörn segir hana aldrei hafa jafnað sig á nauðgun sem hún varð fyrir á unglings­aldri. Sú nauðgun var kærð en Hæstiréttur sýknaði manninn. Guðbjörn segir manninn koma úr elítunni í Reykjavík. Hann lýsti máls­atvikum svo á föstu­daginn:

„Nauðgarinn var huggu­legur ungur strákur sem spilaði meira að segja fótbolta og kom úr „high society“ í Reykjavík. Faðirinn er „akademíker“ og móðirin var áberandi pólitíkus og lista­spíra í borginni úr aðal „hipp & kúl“ stjórna­mála­flokknum á þeim tíma. Á yfir­borðinu var þetta allt slétt og fellt. En allt kom fyrir ekki og Héraðs­dómur Reykja­víkur trúði ekki dóttur minni heldur nauðgaranum.“

„Þessi sami strákur nauðgaði mér þegar við vorum 12 ára. Er í fyrsta skipti að segja það upphátt í dag. Sannfærði mig um að ég hafi leyft þessu að gerast. Ég sagði óteljandi sinnum nei,“ skrifar Júlía.

„Reyndi að hlægja og breyta þessu í djók til að komast í burtu þegar hann hélt mér upp að vegg með puttana inní mér. Þetta endurtók sig marg oft í þessum göngutúr. Einhverntimann hætti ég að segja nei og endaði hálf ber á frosnu grasi og beið eftir að hann kláraði.“

Hún segir manninn aldrei hafa fengið dóm. „Hann er búin að vera nauðga stelpum allavega frá því hann var 12 ára. Hefur aldrei verið dæmdur. Versta er að ég á svo margar svona svipaðar sögur. Svo margar. Og svo margar!!!!! konur sem ég þekki. Hversu oft þurfa konur að opna á sömu sárin aftur og aftur og aftur þangað til eitthvað breytist hvað ætlum við að gera í þessu?“

Svo virðist sem maðurinn hafi verið alræmdur í mennta­skóla. Kristlín Dís Ingilínar­dóttir, blaða­maður á Frétta­blaðinu, segir hann hafa átt viðurnefni í MH: Byrlarinn. Kristlín skrifar: „Gerandinn í þessari sögu var þekktur sem byrlarinn í MH þegar ég var þar. Henni var ekki trúað. Hann var sýknaður. Hún tók eigið líf. Hann hefur ekki þurft að svara fyrir neitt.“

Tómas Gauti Jóhannsson, handrits­höfundur og leiklistar­nemi, var í þessum árgangi í MH. Hann segist tekist á við manninn í útskriftar­ferð árgangsins. „Ég vildi hann ekki með í útskriftar­ferð okkar. Called him out eitt kvöldið og vinir hans urðu reiðir og ósáttir að ég skyldi segja svona hluti. Varaði við honum í ferðinni en margir tóku upp hanskann fyrir honum og leyfðu honum að njóta „vafans“,“ skrifar Tómas í athugasemd við færslu Kristlínar.

Hann bætir svo við: „Mikið verið rætt um skrímsla­væðingu undan­farið og hvað hún gerir ekkert gott.En ég virkilega hata þennan mann og jú fyrir mér er hann skrímsli. Sagði við mig í lok ferðar að ég hefði eyðileggt fyrir sér ferðina og ég væri það versta fyrir hann í þessari ferð. Hvað sem það þýddi.“

Ranghermt var í fyrri útgáfu að Júlía Hrefna hefði kært meintan geranda.

Greinin hefur verið uppfærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim