Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Sögukennari Fjölbrautar í Garðabæ sakar blaðamenn um glæp: „RÚV skipulagði byrlun og þjófnað“

„RÚV skipulagði byrlun og þjófnað. Það eru alvarlegir glæpir. Yfir­stjórn RÚV reynir núna að hindra framgang rétt­vísinnar. Það er líka glæpur,“ skrifar Páll Vilhjálmsson, sögu­kennari við Fjölbrautar­skólann í Garðabæ, um símamál Páls Steingríms­sonar, skip­stjóra og skæruliða Samherja, sem skipulagði rógs­herferð á hendur tilteknum fjölmiðla­mönnum ásamt félögum sínum í svonefndri Skæruliða­deild. Pistillinn, sem ber yfir skriftina RÚV birti ekki fréttir, en framdi glæpinn, var birtur á vef Morgun­blaðsins í dag.

Páll sögu­kennari hefur ritað fjölda greina um málið þar sem hann hefur rakalaust haldið því fram að skip­stjóranum hafi verið byrlað eitur og síma hans stolið. Hann hefur þó ekki áður gengið svo langt fyrr að saka starfs­fólk RÚV um að hafa byrlað nafna sínum eitur. Hann hefur aftur á móti haldið því ítrekað fram að eitrað hafi verið fyrir Páli af einhverjum nákomnum án þess að útskýra það nánar. Mannlíf bar það undir Pál skip­stjóra hver hefði byrlað honum og hvort það snerist um skilnaðarmál en hann snéri út úr spurningunni og vildi ekki svara efnislega.

Páll Stein­gríms­son, skip­stjóri og skæru­liði Samherja.

„Páli var byrlað eitur kvöldið 3. maí. Aðfara­nótt 4. maí var hann sendur með sjúkra­flugi frá Akureyri á gjörgæslu í Reykjavík. Yfir­stjórn RÚV vill fella niður lögreglu­rannsókn á glæpnum og beitir fyrir vagn sinn stjórn­málamönnum og fjöl­miðlum,“ skrifar Páll sögu­kennari.

Páll vísar til þess aðStefán Eiríksson útvarps­stjóri og Heiðar Örn Sigurfinnsson frétta­stjóri hafi sent frá sér yfir­lýsingu til stuðnings sínu fólki.

„Stefán útvarps­stjóri og Heiðar frétta­stjóri RÚV birta yfir­lýsingu í gær um mikilvægi þess að fjöl­miðlar fái óáreittir að birta fréttir. RÚV birti ekki fréttir úr stolnum einka­gögnum Páls skip­stjóra, það gerðu Kjarninn og Stundin. Verk­skiptingin gekk út á að grunur félli ekki á RÚV ef upp kæmist að gögnin væru illa fengin. Þetta var varúðar­ráðstöfun,“ skrifar Páll.

Kristinn Þor­steins­son, skóla­meist­ari FG, umber óhróður starfs­manns síns og kvittar þannig upp á sögu­skýr­ingar hans.

Kristinn Þorsteinsson, skóla­meistari Fjölbrautar­skólans í Garðabæ, hefur sýnt sögu­kennara sínum stuðning. Páll fór mikinn á sínum tíma og sagði að Helgi Seljan frétta­maður væri geðveikur. Foreldrum nemenda skólans og öðru starfs­fólki var ofboðið vegna fordómanna en Kristinn stóð með undirmann sínum. Óljóst er hvaða augum skóla­meistarinn lítur þá yfir­lýsingu kennarans að starfs­menn RÚV hafi skipulagt að eitra fyrir Páli Steingríms­syni.

Morgun­blaðið hýsir skrif Páls Vilhjálms­sonar og hefur gjarnan gert honum hátt undir höfði í skoðana­dálkum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki