Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar

Þurfum við að hafa áhyggjur af gervi­greind­inni?

Saga Úlfarsdóttir
Saga Úlf­ars­dóttir Mynd: Aðsend

Gervi­greind hefur á und­an­förnum árum troðið sér inn á sífellt fleiri svið dag­legs lífs og nú verður hún tekin sér­stak­lega fyrir á Borg­ar­bóka­safn­inu Spöng­inni.

Mánu­dag­inn 19. októ­ber verður fyrsta Fræða­kaffi hausts­ins haldið þar sem Saga Úlf­ars­dóttir, sér­fræð­ingur í gervi­greind, ætlar að ræða tæki­færin og áskor­an­irnar sem fylgja þess­ari ört vax­andi tækni.

Spurn­ing­arnar eru enda margar. Þurfum við að hafa áhyggjur af gervi­greind­inni eða er hún ein­fald­lega nýtt verk­færi sem getur sparað okkur tíma og vinnu? Og hvað ger­ist þegar staf­rænn vinnu­fé­lagi verður allt í einu hluti af vinnu­deg­inum?

Saga mun meðal ann­ars ræða hvernig gervi­greind er þegar farin að hafa áhrif á dag­legt líf fólks og störf og hvaða áhrif hún gæti haft á vinnu­staði, sam­fé­lagið og fram­tíð­ina.

Saga er verk­fræð­ingur með sér­hæf­ingu í gagna­vís­indum og gervi­greind. Hún hefur meðal ann­ars starfað sem Head of AI hjá Tra­vels­hift og sem ráð­gjafi í gervi­greind­ar­teymi Advania. Í dag rekur hún eigið ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki þar sem hún aðstoðar fyr­ir­tæki við að nýta gervi­greind á ábyrgan hátt.

Fræða­kaffið fer fram á Borg­ar­bóka­safn­inu Spöng­inni mánu­dag­inn 19. októ­ber frá klukkan 16:30 til 17:30. Við­burða­röðin Fræða­kaffi hefur verið haldin reglu­lega í Spöng­inni og notið mik­illa vin­sælda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Menning

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian