Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Óboðinn gestur reyndi ítrekað að brjótast inn á heimili – Lögreglan þefaði uppi kannabisræktun

Mynd/logreglan.is
Mynd/logreglan.is

Lögregla þurfti ítrekað að hafa afskipti af sama manninum í gær sökum annarlegs ástands. Fyrstu afskipti lögreglu voru fyrir hádegið eftir að aðilinn reyndi að komast inn í hús þangað sem hann átti ekki erindi. Íbúar höfðu samband við lögreglu sem vísaði manninum í burtu. Þrátt fyrir fyrirmæli lögreglu kom maðurinn alltaf aftur og endaði það með því að lögregla neyddist til þess að handtaka hann fyrir að fara ekki eftir fyrir­mælum lögreglu. Maðurinn gisti í fanga­klefa lögreglu þar sem hann sefur úr sér vímuna ogsvarar til saka þegar ástand hans leyfir.

Síðar um nóttina var lögregla kölluð út á hótel eftir að maður hafði veist að starfs­manni. Kom í ljós að maðurinn var í annarlegu ástandi en auk þess hafði hann töluvert magn fíkniefna og peninga í fórum sínum. Maðurinn var látinn gista í fanga­klefa.

Fyrr um kvöldið höfðu lögreglu­menn sinnt reglu­bundnu eftirliti í Kópavogi er þeir fundu kannabis­lykt. Þá segir í dagbók lögreglu að eftir nokkra rannsóknar­vinnu fundu laganna verðir kannabis­ræktun í íbúð skammt frá. Einn aðili er grunaður og náði lögregla að ræða við hann. Skömmu áður var tilkynnt um umferðar­óhapp þar sem ekið hafði verið á ungmenni á rafskútu. Hafði unglingurinn verið á leiðinni yfir gangbraut þegar ekið var á hann. Hlaut hann minni­háttar meiðsli og fór í fylgd með fjöl­skyldu sinni á bráða­móttöku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“