Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Davíð Roach rífur Patrik Atlason í sig: „Elur á forheimskandi og mannskemmandi efnishyggju“

Patrik Atlason
Patrik Atlason Mynd: Instagram-skjáskot

Davíð Roach Gunn­ars­son rífur Patrik Atlason í sig í nýrri færslu á Facebook.

Partrik Atlason eða Prett­yboitjokkó eins og hann er stundum kall­aður, gefur út nýtt lag í dag sem heitir sama um en lagið, sem er rétt rúmar tvær mín­útur á lengd, samdi Patrik með þremur öðrum tón­list­ar­mönnum. Davíð Roach Gunn­ars­son, plötu­gagn­rýn­andi og pistla­höf­undur á RÚV er væg­ast sagt ósáttur við hið nýja lag og inni­hald þess.

„Í dag kom út nýtt lag með Patr!k eða Prett­yboitjokkó. Inntak þess er að þú verðir að eiga fullt af pen­ingum, flottan bíl og dýr föt til að eiga séns í sætar stelpur. Þetta kemur frá manni sem fædd­ist inn í ríki­dæmi og montar sig af því við hvert til­efni, sem er í eins mik­illi for­rétt­inda­stöðu og hægt er, neppasta nepo-beibíð af þeim öllum. Sem var verið að til­nefna sem „flytj­anda“ árs­ins á íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum.“ Þannig hefst Facebook-færsla Davíðs, sem hann birti fyrir stundu. Segist hann vera „gróf­lega mis­boðið“ með það hvað mest allt sam­fé­lagið bæði „kóar með þessu rusli“ og „hampar því.“

„Mér er gróf­lega mis­boðið hvernig nán­ast allt sam­fé­lagið ekki bara kóar með þessu rusli, sem elur á for­heimsk­andi og mann­skemm­andi efn­is­hyggju, heldur hampar því. Hvernig alls konar fólk sem almennt gefur sig út fyrir að vera vinstri sinnað og/eða femínískt flissar og spilar með í örvænt­ing­ar­fullri til­raun til að virka ekki mið­aldra (það er ekki að takast Óli Palli og Gísli Marteinn!).“

Að lokum segir Davíð að ein­hver þurfi að „öskra sig hásan þegar allir hinir í eyði­mörk­inni eru með­virkir.“

„Ég var með upp­gjör­spistil fyrir árið 2023 í Lestinni um dag­inn sem átti eftir að rata á netið, þar sem ég ræði mikið um þessa alls­herjar hnakka­væð­ingu sam­fé­lags­ins og helstu birt­ing­ar­mynd hennar PBT. Skil hann eftir hérna í kommentum fyrir áhuga­sama. Mér finnst ekk­ert gaman að vera hróp­and­inn, en það þarf ein­hver að öskra sig hásan þegar allir hinir í eyði­mörk­inni eru með­virkir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027