Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Páll Steingrímsson í óhugnanlegu samtali um „hælbíta“: „Ok hvaða cal er best að nota“

Páll Steingrímsson skipstjóri.
Páll Stein­gríms­son skip­stjóri.

Skjáskot er nú á dreifingu á samfélags­miðlunum sem sýnir samtal í formi athugasemda á Facebook þar sem nokkrir aðilar tengdir Samherja ræða saman. Má segja að samtalið sé mjög óhugnanlegt. Meðal þeirra sem hafa birt skjáskotið er Helgi Seljan, blaða­maður Íslands.

Samtalið fer fljótt að snúast um „hælbíta“ en virðast þeir þá vera að tala um þá sem gagnrýnt hafa Samherja undan­farin ár, þó ekki sé hægt að slá því á föstu. Skilgreining Árna­stofnunar á orðinu hælbítur er eftir­farandi: Sá eða sú sem talar illa um aðra, fer með óhróður um aðra.

Starfs­maður Samherja á fyrirtækja­sviði, Sigrún Alda Viðars­dóttir skrifar setningu sem beint er til til Páls Steingríms­sonar, skip­stjóra og meðlim í svokallaðri „Skæruliða­sveit“ Samherja:

„Já Palli við getum verið stolt af því að vinna hjá Máa,“ segir Sigrún á þá við Þorstein Má.

„nákvæmlega við erum það og látum enga hælbíta breyta því,“ svara Páll Steingrímsson

Þá kemur að meindýra­eyðirinn Ólafur Pálmi Agnarsson sem rekur fyrir­tækið Meindýra­varnir Norður­lands. „nei það gerum við aldrey en hælbítur flokkast það ekki undir meindýr“.

Páll svara því einfald­lega með „jú“.

Ólafur spyr þá hvernig byssu sé best að nota á hælbíta. „ok hvaða cal er best að nota“

„300 winmag,“ svarar Páll meindýra­eyðinum.

„var að spá í 17 hrm með bauk,“ segir Ólafur þá.

Páll svarar og birtir mynd af veiðriffli:

nei nei þetta er verkfærið sem ég nota.


Björn Birgisson þjóðfélags­rýnir, sendi skjáskotið á Ólaf Pálma og spurði hann hvort hann kannaðist við þetta samtal. Játaði meindýra­eyðirinn því og spurði Björn hann að bragði hvort hann væri stoltur af þessu. Svar við þeirri spurningu hafði ekki birst þegar fréttin fór í loftið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki