Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sanna vill frysta laun borgarfulltrúa í ár: „Skoðum stóra samhengið“

Hin skelegga Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Sósíalista­flokks Íslands segir að borgar­fulltrúar meirihlutans vilji ekki skoða „sína eigin sjálftöku“ og á þá við himinhá laun þeirra.

Í nýrri færslu á Facebook skrifar Sanna um leiðir til að spara pening fyrir Reykja­víkurborg. Segir hún að með því að frysta laun borgar­fulltrúa og fyrstu vara­borgar­fulltrúa á næsta ári, megi spara 29 milljónir. En segir hún að borgar­fulltrúar meirihlutans vilji ekki „vasast í eigin launum“ en biður fólk að líta á stóra samhengið og tekur svo til nokkur dæmi um það hvað hægt er að gera við 29 milljónir króna.

„Stóra samhengið

Með því að frysta laun borgar­fulltrúa og fyrstu vara­borgar­fulltrúa á næsta ári, má spara 29 milljónir.Borgar­fulltrúar meirihlutans tala um að „vilja ekki vasast í sínum launum.“ Borgar­fulltrúar tala um að velta við öllum steinum og skoða hverja einustu krónu við gerð fjárhags­áætlunar en það má alls ekki skoða þær milljónir króna sem fara til okkar borgar­fulltrúa.Talað er um að laun okkar séu svo lítil í stóra samhenginu. Launa­frysting myndi ekki skila miklu. Hið rétta er að borgar­fulltrúar vilja ekki skoða sína eigin sjálftöku eða líta hana gagnrýnum augum.29 milljónir má nýta til að halda uppi starfssemi Sigluness á næsta ári, þar sem borgar­stjórn telur sig spara 23 milljónir með því að leggja Siglunes niður.29 milljónir mætti nota til að koma í veg fyrir skerðingu á opnunar­tíma félags­miðstöðva. Með því að stytta opnunar­tíma á félags­miðstöðvum fyrir unglinga frá 22:00 til 21:45 telur borgar­stjórn sig spara 9 milljónir 859 þúsund krónur á ári.29 milljóir væri hægt að nota til að greiða öllum sem eru á skammarlegri lágri upphæð fjár­hagaðstoðar, desember­uppbót. En nú eru reglurnar þannig að einungis þau sem hafa fengið fulla fjárhags­aðstoð undan­gengna þrjá mánuði samfellt, fá desember­uppbót. Hún er 25% af fjár­hæðinni.Ef borgar­stjórn myndi sammælast um að taka ekki við launa­hækkunum á næsta ári, þá gætum við veitt þessa desember­uppbót til allra sem eru með tekjur fjárhags­aðstoðar en samt átt 9 milljónir kr. eftir.Skoðum stóra samhengið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti