Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hinn goðsagnakenndi Gordon Lightfoot er látinn: „Megi arfleifð hans lifa að eilífu“

Gordon Lightfoot
Gordon Lightfoot Mynd: Trausti Hafsteinsson

Kanadíska þjóðlagarokk­goðsögnin Gordon Lighfoot er látinn, 84 ára að aldri.

Lightfoot lést á spítala í Toronto í gærnótt af náttúru­legum orsökum, samkvæmt útgefanda hans.

ET segir frá andlátinu.

Hinn látni lista­maður var hvað þekktastur fyrir smellinn If You Could Read My Mind og Sundown, Carefree Highway og Rainy Day People, svo eitthvað sé nefnt.

Alls gaf Lightfoot út 20 plötur á ferlinum og samdi hundruði laga.

„Ég sem einfald­lega lög um það hvar ég er og hvaðan ég kem,“ sagði hann eitt sinn.

„Ég tek aðstæður og skrifa ljóð um þær.“

Forsætis­ráðherra Kanada, Justin Trudeu, var einn þeirra sem minntist Lighfoot er fréttir bárust af andláti hans, en hann tvítaði:

„Við höfum misst einn okkar bestu söngva­skálda. Gordon Lightfoot fangaði anda þjóðarinnar með tónlist sinni – og með því hjálpaði hann að móta hinn kanadíska hljóðheim. Megi tónlist hans halda áfram að veita komandi kynslóðum innblástur og megi arfleifð hans lifa að eilífu. Til fjöl­skyldu hans, vina og hinna fjölda aðdáanda um allt land og í heiminum: Ég geymi ykkur í hugsunum mínum á þessum erfiðu tímum.“

Metsölu­rithöfundurinn Stephen King minntist Lightfoot einnig:

„Gordon Lightfoot er látinn. Hann var frábær laga­höfundur og yndislegu skemmtikraftur,“ skrifaði hann og bætti við texta úr laginu Sundown: „Sundown, you better take care/If I catch you creepin’ ’round my back stairs.“

Fjöldinn allur af lista­mönnum hefur gert ábreiður af mörgum laga hins goðsagna­kennda söngvara, þar á meðal kanónur á borð við Bob Dylan, Elvis sjálfur Presley, Johnny Cash, Neil Young, Barbra Streisand og Eric Clapton.

Lightfoot var innlimaður í Frægðar­höll Kanada árið 1986. Hann hlaut á ferlinum fjórar Grammy-tilnefnningar, en árið 2020 var gerð heimildar­mynd um hann sem heitir Gordon Lightfoot: If You Could Read My Mind.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt