Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Laufey er öryrki í öngum sínum: „Ég hef ekki lengur efni á lyfjunum mínum“

„Það er erfitt að upplifa ekki skömm í svona stöðu,“ segir Laufey Þorsteins­dóttir, öryrki á sjötugsaldri en hún kveðst vera í öngum sínum vegna skertra möguleika og refsinga að hálfu Trygginga­stofnunar ríkisins að eigin sögn. Mannlíf hafði samband við Laufeyju en á dögunum ákvað hún að láta reyna á náunga­kærleikann með því að óska eftir stuðningi fólks.

Að sögn Laufeyjar hefur verið krefjandi fyrir að ná endum saman, en hafi erfiðin gjörbreyst þegar hún fékk greidda orlofs­daga fyrir starf sem hún sinnti í fyrra.

„Ég fékk hluta­starf á síðasta ári og reyndist það gagnast lítið þegar ríkið borgar brúsann. Þetta var komið í lag um áramót og ég var farin að fá húsaleigu­bætur og líka stuðning frá Reykja­víkurborg. Í mars síðastliðinn fékk ég þó greidda orlofs­dagana sem ég átti inni í þessari gömlu vinnu. Það telst sem laun og þá fór ég yfir mánaðar­legu mörkin,“ segir Laufey.

„Núna er Trygginga­stofnun að skerða bæturnar og húsleigu­bæturnar skerðast líka. Ég fæ heldur ekkert frá Reykja­víkurborg og ég borga 220.000 krónur í húsaleigu.“

Laufey býr ein og segist af og til neyðast til þess að velja á milli lyfja sinna eða matar í gefnum mánuði. Hún segir hluta­starf frá liðnu ári hafa komið allri rútínu úr jafnvægi og telur kerfi hins opinbera níðast á öryrkjum víða. Fullyrðir hún að umrætt kerfi sé hannað til þess að fólk í hennar stöðu gefist upp.

Þá tekur hún fram að þau hefð­bundnu úrræði sem bjóðast fólki í samfélaginu gangi ekki upp. „Það eru sumar þjónustur sem greiða niður og veita styrki fyrir læknis­kostnað og fleira slíkt, en þá þarf auðvitað að eiga til krónurnar á staðnum áður en hægt er að fá greitt til baka. Það er mikið til ætlast af fólki að eiga þessa tugþúsundir króna þegar reglulega þarf að telja smáaurana,“ segir hún.

Velur og hafnar

„Fleiri sem ég þekki upplifa þetta vonleysi,“ segir Laufey. „Margir öryrkjar upplifa þessa skömm, að eiga oft ekki efni á mat eða öðru sem þarf til að viðhalda heilsunni. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að það fer enginn öryrki til tann­læknis. Það er ekkert hægt að velja endalaust eða hafna hvað fer í forgang, hvað þá þegar staðan mín rétt nemur um fimmtán þúsund krónur eftir að hafa greitt leigu og lækninum. Ég hef ekki efni á því að greiða fleiri reikninga.“

Laufey glímir við sykursýki og segist þurfa að fá stóma. Það kosti annars vegar gífur­legan pening. „Ég hef ekki lengur efni á lyfjunum mínum og hvað þá þeirri læknis­þjónustu eða þeim aðgerðum sem ég þarf á að halda,“ segir hún. „Þegar einstaklingur er að fást við sykursýki er mjög mikilvægt að borða, en ég má ekki borða hvað sem er. Sem betur fer á ég tvo ketti sem hjálpa mér að halda geðheilsunni í þessari einangrun minni, en þær þurfa auðvitað líka að borða.“

Á dögunum hlóð Laufey í færslu í hópnum Matargjöf. Vakti hún þar athygli og samkennd fólks sem grúppunni tilheyrir, en í umræddri færslu skrifar Laufey meðal annars:

„Ég er búin að vera mikið veik. Ég var hjá lækni í dag og það eina í stöðunni er að fara í stóra skurð­aðgerð og fleiri rann­sóknir. Allt kostar þetta kostar mjög mikið og ekki alls staðar hægt að fá reikning í heima­banka og borga þegar aðstæður eru betri.

… Ef einhver sér sér fært um að hjálpa mér með eitthvað smáræði þá er ég með Bónuskort
númer 52021293362 og reiknings­númerið 0314-13-146007 Kt 1610603569.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Húsið var reist árið 1978
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Lúðvík Pétursson féll í sprungu við vinnu í Grindavík í janúar 2024.

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto