Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Jón Óðinn skrifar um vin sinn Arnar sem enn er ófundinn: „Ég sá ekki þau skilaboð. Svo hvarf hann“

Æsku­vinur Stefáns Arnars Gunnars­sonar, er hvarf í byrjun mánaðar, Jón Óðinn Wa­age, leið­beinandi barna með hegðunar­vandamál og fyrr­verandi júdó­þjálfari, skrifar fallegan og áhrifa­mikinn pistill um vin sinn á Akur­eyri.net.

Enn eru fáar vís­bendingar sem hafa borist lög­reglu vegna málsins; á tíma­bili tóku yfir 100 björgunar­sveitar­menn þátt í leitinni.

Jón Óðinn segir í pistli sínum að leiðir hans og Stefáns hafi fyrst legið saman er hann var 10 ára gamall, en Jón Óðinn kallar Stefán Arnar alltaf Arnar.

Stefán Arnar er enn ófund­inn.

Elsku vinur minn, Arnar

„Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar hann var 10 ára, hann sat þá til borðs með mér og júdókrökkunum þegar verið var að afhenda árlegar viðurkenningar fyrir Íslands­meistara­titla. Frændi hans hafði orðið Íslands­meistari en ekki komist svo ég bað hann um að taka við verð­launum fyrir hönd frænda síns. Það gerði hann og endaði á mynd í bæjar­blaðinu sem einn af þeim sem höfðu orðið Íslands­meistarar í júdó. Hann fékk að heyra það reglulega frá mér næstu rúmlega þrjátíu árin að þetta hefði verið hápunkturinn á ferli hans.“

Bætir við:

„Árin liðu og hann fullorðnaðist. Leiðir okkar lágu næst saman í ræktinni þegar hann varð einn af fasta­gestum í spinning tímum hjá mér. Af og til laumaði ég með þungarokki af klassísku gerðinni honum til mikillar gleði. Við spjölluðum oft í ræktinni og með tímanum urðum við góðir vinir. Hann var eldklár, sjálf­stæður og óhræddur við að gagnrýna það sem honum fannst miður. Þegar ég flutti út til Svíþjóðar fyrir átta árum síðan var ég ekki í góðu jafnvægi. Alvarlegt þunglyndi þjáði mig með öllum þeim myrku hugsunum sem því fylgir. Ég ræddi það ekki við nokkurn mann, en á einhvern undarlegan hátt skynjaði hann það.“

Jón Óðinn segir að „það fór svo að við spjölluðum oft saman þó svo að við værum alltaf í sitthvoru landinu, ég í Svíþjóð en hann ýmist á Íslandi, í Þýska­landi eða í Færeyjum. Það voru góð samtöl. Hægt og rólega fór hann að opna á líðan sína, honum leið ekki vel og hafði sennilega aldrei gert það. En hann hafði byggt í kringum sig múr sem hann hleypti engum inn fyrir, ég benti honum oft á þetta og hann samsinnti því en sagðist ekki þora eða vita hvernig hann ætti að brjóta þennan múr niður. Hann hafði lagt allt sem hann hafði að gefa í að þjálfa aðra og hjálpa þeim, hann skildi ekkert eftir fyrir sig sjálfan.“

Hann nefnir að „við áttum það sameiginlegt að vinna með þeim sem við þjálfuðum skipti okkur öllu. Þegar maður er þannig brennur maður svo mikið fyrir starfið að samskipti við annað fólk verða oft sérstök vegna þess að það fólk sér ansi oft ekki hlutina í sama ljósi. Þá þykir maður erfiður og er það, en þeir sem eru á hliðar­línunni geta aldrei séð sömu heildar­myndina og sá sem þjálfar. Það skilur fólkið á hliðar­línunni sjaldnast og þá verða árekstrar. Vinur minn var eins og ég, hafði ekkert umburðar­lyndi gagnvart þessu fólki. En íþrótta­pólitík á Íslandi er grimmileg og fólk hikar ekki við að reka hnífinn í bakið á jafnvel samherjum. Bakið á vini mínum var sundur­stungið.

Fyrir fjórum árum var ég langt niðri en eins og alltaf sagði ég engum frá því. Vinur minn skynjaði það og sendi mér myndband af viðtali við mann sem lifði af sjálfsmorðstilraun. Maðurinn hafði stokkið fram af hárri brú. Hann sagði að um leið og hann hefði sleppt takinu hefði hann séð eftir stökkinu. Vinur minn sagði að það væru til fjöldinn allur af svona frásögnum og þetta væri aldrei svarið. Svona var þessi vinur minn, hann skynjaði vanlíðan mína og kom þá hreint og beint fram, ekkert farið í kringum hlutina. Hann gerði mér fyllilega ljóst að væri ég í svona hugleiðingum þá væri það rangt af mér. Fyrir nokkrum vikum hafði hann samband við mig og sagðist vera mjög langt niðri eftir enn eina hnífs­tunguna í bakið. Við spjölluðum lengi.“

Jón Óðinn segir að „ég hafði oft hvatt hann til að fara til sálfræðings til að reyna að brjóta niður múrinn og hann hafði reynt það, en núna sagði ég honum að hann yrði að gera það. Nokkrum dögum seinna heyrði ég í honum og þá hafði hann spjallað tvisvar við sálfræðing og sagði það hafa gengið vel. Daginn eftir sendi hann mér skilaboð og spurði hvort hann gæti hringt í mig. Ég sá ekki þau skilaboð. Svo hvarf hann.

Elsku vinur minn Arnar Gunnarsson, ég sakna þín ákaflega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim