Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Friðrik Agni svarar fyrir sig: „Vil bara fá að eiga minn líkama og mína samfélagsmiðla í friði“

Friðrik Agni Árnason
Friðrik Agni Árnason Mynd: Trausti Hafsteinsson

„Hvað ertu að gera? Af hverju? Oj, þetta er svo óþægilegt. Þetta triggerar svo margt inn í mér. Vantar þig athygli? Hver er tilgangurinn?“ Svona byrjar færsla hjá Friðriki Agna Árnasyni, dans­þjálfara, skálds og tauga­túlkunar­þjálfara (e. Neurolingustic Practitioner), á Facebook.

Í færslunni veltir Friðrik Agni fyrir sér samfélags­miðlum en hann segist hafa oft lent í því að fólk sé að skipta sér að hans notkun á samfélags­miðlum og það hvernig myndum hann póstar af sér og hvaða texta hann birtir og fleira í þeim dúr. „Best af öllu auðvitað er að skoða aðeins í eigið sjálf af hverju mynd og texti einhvers annars geti haft þau áhrif að þú triggerast og líður illa í sálinni,“ segir Friðrik Agni á einum stað í færslunni en hann gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta hana í heild sinni. Færsluna má lesa hér að neðan:

„Hvað ertu að gera? Af hverju? Oj, þetta er svo óþægilegt. Þetta triggerar svo margt inn í mér. Vantar þig athygli? Hver er tilgangurinn?

Já fólk spyr og spekúlerar. Hvað er Frikki eiginlega að gera þegar hann póstar myndum af sér berum að ofan?

…Ég ætlaði ekki að ,,blanda“ mér í og veita þessu frekari athygli en geri það samt. Því ég get eiginlega ekki setið á mér. Ég spyr á móti, af hverju skiptir það þig máli? Ég get fullvissað þig um það að mér líður bara ágætlega í eigin skinni. Ég hef orðið fyrir bæði fordómum og ljótum athuga­semdum í fortíðinni um útlitið mitt og einnig verið þvingaður til að gera hluti með líkamanum mínum sem mig langaði ekki að gera.Ég í dag sem full­orðinn, sterkari maður með mína kynvitund og hneigð á hreinu vil bara fá að eiga minn líkama og mína samfélags­miðla í friði. Fyrir mér nota ég miðilinn til að tjá mig með myndrænum og skrif­legum máta. Ég hef alltaf hrifist af fyrirsætu­starfi, ljós­myndun, líkams­beitingu, andliti, augum og orðum. Síðustu ár hef ég fundið að minn vettvangur til að rannsaka allt þetta í sjálfum mér og deila út á við er á samfélags­miðlum. Hér er vettvangurinn. Og tel ég það af hinu heilbrigða að sjá, heyra og lesa um fólk sem þorir að vera berskjaldað og reyni ég því að bestu getu að sýna það fordæmi sjálfur. En það er MITT VAL. Ég dæmi ekki það fólk sem vill ekki lifa þannig lífi enda kemur það mér ekki við. Ég neyði ekki fólk til að horfa á bringuna mína eða lesa pistla eða ljóð eftir mig. Ég varpa þessu bara fram sem vali. Þetta er það sem ég býð upp á. Þetta er ég. Líkar þér það? Líkar þér það ekki? Það er ekki til umræðu. Það er ekki tilgangurinn.Ef fólk hefur ekki neitt betra að gera en að láta sig triggerast út af samfélags­miðla innleggi annarra þá mæli ég hiklaust með því að einfald­lega velja að sjá minna af þeim aðilum sem eru svona triggerandi, eða öllu heldur, sleppa því að fylgja þeim. Það er enginn sem neyðir þig til þess. Best af öllu auðvitað er að skoða aðeins í eigið sjálf af hverju mynd og texti einhvers annars geti haft þau áhrif að þú triggerast og líður illa í sálinni.Ég vil ekki vera þess valdandi að einhverjum líði illa einfald­lega með því að vera til og tjá mig á þann máta sem mér þykir frjálst og eðlilegt. Ekkert sem ég er að gera er beint að neinum persónu­lega og ætti því ekki að geta verið túlkað sem persónuleg árás. Halló, þetta eru myndir af mér, orð um mína reynslu og þekkingu og/eða ljóð. Mitt líf er ekki um þig, heldur um mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim