Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Kolbrún Bergþórs spyr hvað verði á boðstólum á næstu Píkudögum: „Kannski píkusmakk?“

Myndin er samsett.
Myndin er sam­sett.

Blaða­konan Kolbrún Bergþórs­dóttir segir í grein á Vísi að „einhvern tímann var það yfirlýst markmið Háskóla Íslands að verða einn af 100 bestu háskólum heims. Sennilega er svo enn því háskóla­stofnun hlýtur ætíð að setja sér göfug markmið,“ og bætir þessu við:

„Hér skal þó ósagt látið hvort svokallaðir Píkudagar sem haldnir voru í háskólanum fyrir nokkrum dögum séu þáttur í því háleita markmiði þessarar merku stofnunar að komast í hóp þeirra 100 bestu. Framtakið hlýtur allavega að flokkast til akademískra skringi­legheita, þótt ekki sé líklegt að háskóla­samfélagið hafi meðvitað stefnt að því.“

Kolbrún nefnir að „ekki skal dregið úr þeirri staðreynd að karlmenn hafa stundum verið æði uppteknir af typpinu á sér. Sumir þeirra, dóna­karlarnir alræmdu, hafa átt það til að senda kynningar­myndir af typpinu á sér til kvenna. Þeir lifa í þeim misskilningi að þannig geti þeir unnið sig í álit meðan staðreyndin er sú að karlmenn sem eru öllum stundum uppteknir af typpinu á sér þykja fremur hvimleið fyrirbæri. Í daglegu tali eru þeir oft kallaðir typpalingar.“

Bætir við:

„Á ýmsum tímum hafa svo verið reistar byggingar af alls kyns tagi sem minna óneitanlega á reðurtákn. Eitt slíkt, sements­strompurinn voldugi, var nýlega fellt á Akranesi, og þótti mörgum það mikill óþarfi. Önnur standa þó enn í fullri reisn og þykja jafnvel hin mestu augnayndi. Þannig að typpin rata víða.“

Kolbrún segir að „ekki hefur þó enn frést af háskóla­ráðstefnum með tilheyrandi pallborðs­umræðum, málstofum og þátttöku stjórn­málaflokka þar sem áherslan er á þetta sérstaka líffæri, typpið. Það myndi sennilega heyrast hljóð úr horni yrði slík háskóla­ráðstefna auglýst með alls kyns uppákomum eins og spurninga­keppnum um typpi, upplestri á runk­minningum og veitingum á borð við typpa­kokteila.“

Hún vill meina að „það þykir hins vegar hið mesta framfaramál þegar konur efna til Píkudaga í Háskóla Íslands og ræða um heilsu píkunnar og segja sjálfs­fróunar­sögur. Þetta er í fyrsta sinn sem Píkudagar eru haldnir og af auglýsingum og fjölmiðla­umfjöllun mátti ráða að vonir stæðu til að þeir yrðu árlegur viðburður. Landsmenn hljóta að bíða spenntir eftir því hvað verður á boðstólum á næstu Píkudögum. Kannski píkusmakk?“

Kolbrún er á því að „kven­frelsis­baráttan er komin upp á nýtt og framandi stig þegar einblínt er á píku­dýrkun sem svar við reður­dýrkun karla.

Ætla mætti að kynin hafi sitthvað merkilegra við að iðja í háskólum en að einblína á kynfæri sín og hefja þau upp á stall? Slíka upphafningu getur fólk vissulega stundað af alefli heima hjá sér, og haft unun af, en háskóla­stofnun á ekki að vera musteri slíkrar iðju.“

Kolbrún segir að endingu að „sitthvað er svo óunnið í jafnréttis­baráttunni, hér á landi eru til dæmis hópar láglauna­kvenna sem engan veginn geta lifað af launum sínum. Í stað þess að fylkja sér um píkuna væri nær að slá skjald­borg um þessar láglauna­konur og vinna að því að bæta kjör þeirra. Kvenna­barátta er mikilvæg og merkileg og á að fara fram í háskólum landsins, en það er sannarlega ekki verið að gera henni hátt undir höfði með jafn skringi­legu og innihalds­litlu fyrirbæri og Píkudögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna