Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Huey Lewis opnar sig um heyrnarleysið: „Það hefur verið beisk pilla og erfið að gleypa“

Huey Lewis
Huey Lewis Mynd: Trausti Hafsteinsson

Popp­stjarnan Huey Lewis segir það „beiska pillu að gleypa“ að hann sé orðinn alveg heyrna­laus. Hann neitar hins vegar að gefast upp.

Huey Lewis, sem sló rækilega í gegn á níunda áratugnum með hljómsveit sinni Huey Lewis and the News, með slagara á borð við Sports, Fore!, Hip to Be Square og Stuck With you, svo eitthvað sé nefnt, er orðinn heyrna­laus. Þetta kemur fram í viðtali hjá Songfacts.

Lewis byrjaði að missa heyrnina í lok níunda áratugarins en í dag er hann alveg heyrna­laus. Söngvarinn tjáði sig um þetta viðkvæma mál í viðtali við Songfacts í tilefni af endur­útgáfu á vínyl­plötu Huey Lewis and the News, Sports, en nú eru 40 ár frá útgáfu plötunnar.

„Ég get ekkert hlustað á tónlist. Ég heyri alls ekki tónhæð. Jafnvel ein nóta er ekki í takt við sjálfa sig fyrir mér, þannig að það hefur verið beisk pilla og erfið að gleypa. En þú verður að halda áfram með lífið. Ég er núna með heyrna­tæki og er að nota Bluetooth í tölvunni þannig að ég heyri í þér,“ sagði Lewis við viðtal­andann og bætti við: „Án heyrna­tækjanna er ég algjör­lega heyrnar­laus.“

Í viðtalinu rifjar söngvarinn einnig upp þegar hann byrjaði að missa heyrnina og hvernig það hafði áhrif á hann persónu­lega. „Ég missti heyrnina hægra megin fyrir 35 árum. Þegar ég missti heyrnina vinstra megin og gat ekki heyrt tónlist lengur, var það algjört áfall. Næstu sex mánuði gerði ég lítið annað en liggja í rúminu, hafandi áhyggjur og reynandi mismun­andi aðferðir, nála­stungur, kírópraktík og lífræna fæðu, ekkert salt, lítið salt og allt það drasl. Og loksins, með hjálp barnanna minna, varð ég bara að halda áfram með lífið.“

En Lews neitaði að vorkenna sjálfum sér og fann aðrar leiðir fyrir sköpunar­gáfur sínar.

„Ég reyni að halda mér uppteknum. Við erum með söng­leikinn [sem saman­settur er með lögum eftir Huey Lewis and the News og ber heitið The Heart of Rock & Roll], sem ég hef tekið mjög mikinn þátt í að gera, jafnvel þó ég heyri ekki tónlistina. Og ég er með sjónvarps­þátt sem ég er búinn að selja Fox stöðinni en við erum fastir eins og er vegna verkfalls höfunda í augna­blikinu. Ég reyni að halda mér skapandi og uppteknum. Ég minni sjálfan mig á að það eru margir, margir aðrir sem eiga það verr en ég og það er mikilvægt fyrir mig að muna. Líf mitt er ekki eins gott og það var þegar ég hafði heyrn en það er samt nokkuð gott.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt