Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hópbílar ætla að upplýsa frumhlaup bílstjórans: „Við ætlum að fá botn í málið, því get ég lofað“

Myndin er samsett og tengist fréttinni ekki beint
Myndin er sam­sett og teng­ist frétt­inni ekki beint

Rútu­bílstjórinn hjá Hópbílum sem í tvígang virti ekki tilmæli björgunar­sveitamanna né lögreglu og þveraði þjóðveg 1 við Pétursey á jóladag hefur ekki enn skilað sér til borgarinnar. Mannlíf ræddi við Pálmar Sigurðsson, skrif­stofu- og starfsmanna­stjóra hjá Hópbílum, og spurði um stöðu mála:

„Það er í sjálfu sér afskaplega lítið um það að segja eins og staðan er. Við erum náttúru­lega bara að vinna í þessu máli og erum að skoða þetta mál og fá að vita nákvæmlega hvað gerðist þarna og af hverju það fór svona eins og fór.“

Björgunar­sveitir aðstoðuðu við að losa rútuna við Péturey en þrátt fyrir endur­tekin tilmæli hélt bílstjórinn áfram og festi rútuna aftur við afleggjarann hjá Hótel Dyrhólaey. Björgunar­sveitir aðhöfðust ekki frekar í málinu eftir það.

„Þau eru sem sé enn þá á Hótel Dyrhólaey, þessi hópur sem var þarna á ferð og við eigum von á þeim í bæinn í dag þar sem veðri er nú farið að slota,“ segir Pálmar hjá Hópbílum að fyrir­tækið muni í kjölfarið senda frá sér yfir­lýsingu.

Þrýstingur frá ferðaskrifstofu

Mannlífi barst ábending að hópurinn hafi verið á vegum ferða­skrifstofu. Hópurinn átti bókaða hótel­gistingu sem ekki fékkst endur­greidd. Bílstjóri og farar­stjóri áttu að hafa stað­fastlega neitað að halda förinni áfram en þrýstingur frá ferðskrifstofunni hafi ráðið för.

Aðspurður hvort svo endur­greiðslu­skilmálar hótelsins og þrýstingur ferða­skrif­stofunnar hafi ráðið för svarar Pálmar:

„Við erum að skoða af hverju þetta gerist. Það er mjög leiðinlegt hvernig þetta lítur út og ég vona að það rétta í stöðunni komi svo í ljós og þá munum við að sjálfsögðu senda eitthvað yfir það. Við erum að bíða eftir að fólk skili sér í bæinn og þá verður þetta tekið hérna fyrir.“

Pálmar útskýrir jafnframt að margir þættir spili inn í.

„Þessi bílstjóri, þrátt fyrir að vera erlendur bílstjóri þá er hann vanur […] og svo ertu þarna með hóp og farar­stjóra og annað. Það er svo margt þarna inni sem að við þurfum að átta okkur á og hvað fór úrskeiðis.“

Á vegum hvaða ferða­skrifstofu er hópurinn?

„Ég bara veit það ekki. Ég var bara að koma til vinnu og er bara að fá þetta hérna inn á borð til mín. Þess vegna er ég að kalla eftir upplýsingum. Við sendum frá okkur um leið og það er komið eitthvað. Þetta er ekki eitthvað sem við viljum að sé að dansa svona í kringum okkur – það er nokkuð ljóst.“

Að lokum vill Pálmar ítreka að engin slys urðu á fólki. Hópnum var komið fyrir á hóteli var þar yfir jólin og er þar enn – eins og margir sem lentu í þessum vandræða­gangi.

„Við ætlum að fá botn í málið, því get ég lofað þér,“ segir Pálmar að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja