Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hrefnu-Konni fór á fund með móðguðum Davíð Oddssyni: „Hann tók í einn köggul á löngutöng á mér“

Konráð Eggertsson eða Hrefnu-Konni eins og hann er oft kallaður, var nýlega í viðtali við Reyni Traustason. Hér er brot úr því en Konráð er með eindæmum skemmtilegur sagna­maður.

Enginn Davíð

„Það var þannig að Davíð Oddsson var forsætis­ráðherra og við báðum um fund með honum. Ég var formaður í félaginu í tuttugu ár, í Félagi hrefnu­veiðimanna. Og jújú, við mætum á fundinn allir, bæði að norðan og austan og héðan og þaðan. Við mætum sem sagt upp í stjórnarráð og setjumst þar niður. Og tíminn líður og ekki kemur Davíð og svo er klukkan komin langt yfir tímann og aldrei kemur Davíð. Við spyrjum hvernig standi á þessu og þá segir síma­stúlkan, voða almennilega stúlka blessunin, hún segir „Ég bara veit ekki, skil þetta ekki, þetta hefur aldrei gerst áður.“. Og tíminn líður og svo kallar maður ofan af lofti, aðstoðar­maður Davíðs. Við spjöllum við hann en ákveðum að sitja bara þangað til Davíð kemur en það var ekki samþykkt. Þannig að við förum út í bíl og kveikjum á útvarpinu og þá var Davíð á Stöð 2 eða einhvern andskotann að tippa á eitthvað, þetta var áður en hann fór í fýlu við Jón Ólafsson. Þannig að við fórum allir heim, Davíð kom aldrei.“

En þar með líkur ekki frásögn Hrefnu-Konna af Davíð Oddssyni því daginn eftir fékk hann símtal.

Ástæðan

„Daginn eftir fæ ég símtal frá aðstoða­manni Davíðs. Hann segir mér af hverju hann hafi ekki mætt. Það var vegna þess að ég hafði sagt í útvarpinu nokkrum dögum áður, það var nú ósköp meinlaust, ég sagði „Ég trúi því ekki að forsætis­ráðherrann viti ekki um hvað hann er að tala.“. Það var ekkert annað. Svo ég segi Matta frá þessu, Matta Bjarna, hann var ráðherra á þessum tíma. Og hann segir „Svona gera ekki menn! Ég kem á öðrum fundi.“. Svo er ég látinn vita hvenær við eigum að mæta. Þegar ég kem inn í stjórnar­ráðið sitja þar þrír eða fjórir menn, svakalega vel klæddir, mér er svo minnis­tætt hvað þeir voru vel klæddir. Þeir voru í svörtum fötum í hvítri skyrtu með bindi. Þá eru þetta menn að bíða eftir Davíð. Svo opnast hurðin. Okkur er bent á að koma inn. Með okkur var lögfræðingur okkar sem hafði verið lögfræðingur hjá okkur í mörg ár. Mér fannst að hann ætti að hafa orðið fyrir okkur. Svo labba ég síðastur inn. Hann tók í einn köggul á löngutöng á mér en heilsaði öllum hinum með handa­bandi.“

Og þá hófst fundurinn.

Fundurinn

„Og svo förum við inn og hann segir „Jæja, hver er í forsvari fyrir ykkur og hvað vantar ykkur? Það bíða hér fjórir menn hér frammi og ég hef engan tíma til að tala við ykkur.“. Og við horfum hver á annan og vitum bara ekki hvar við erum staddir. Og ég hélt að lögfræðingurinn okkar ætli að byrja en svo var ekki. Þá segi ég „Davíð, hvar er koníaks­karaflan?“. Nú héldu strákarnir að ég væri orðinn endanlega vitlaus, það fattaði þetta enginn. Þá brosir Davíð. Djöfull var hann fljótur að fatta þetta. Ég var nýbúinn að lesa bókina Nokkrir dagar án Guðnýjar sem hann skrifaði. Og hló mikið og las hana meira að segja upphátt fyrir konuna. Mikil og skemmileg bók.“

Konni sagði Reyni frá einni frásögn úr bók Davíðs þar sem koníaks­karaflan kemur við sögu. Og hélt svo áfram með söguna af fundinum með forsætis­ráðherranum móðgaða.

„Og þetta var nóg. Þarna vorum við allt í einu komnir með allt annann mann í fangið. Hann fór að segja brandara og skellti sér á læri og hló. Við hlóum líka, enda þorðum við ekki öðru. En hann var skemmtilegur helvítis karlinn. Og hann segir okkur sem sagt brandara og svona og þá skiptu mennirnir sem biðu fram engu máli! Ég man nú ekki hvað við vorum að biðja um á fundinum en hann tók vel í það en svo segir ég við hann „En Davíð, ert þú sjálfur, persónu­lega á móti hval­veiðum?“. Þá segir hann „Já“ og ég spyr af hverju það sé. „Það skal ég segja þér. Sko, Helmut Kohl, hann er vinur minn og hann er á móti hval­veiðum. Og svo er hann eins og búrhvalur í útliti.“. Og svo hló hann og hló og við allir líka, alveg eins og hálfvitar. Þegar ég fór út þá tók hann svona fast í höndina á mér og hristi.“

Hægt er að hlusta á þetta bráð­skemmtilega viðtal í heild sinni hér og hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja