Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

„Stjórn Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda harmar þá stöðu sem upp er komin“

Anton Máni Svavarsson.
Anton Máni Svav­ars­son.

„Stjórn SÍK harmar niður­skurð í fjárlögum og lýsir yfir vonbrigðum með ummæli ráðherra Yfir­lýsing SÍK vegna niður­skurðar til kvikmynda­sjóða,“ segir í tilkynningu frá Sambandi íslenskra kvikmynda­fram­leiðenda.

Þar segir einnig:

„Í framhaldi af fjölmiðla­umfjöllun í vikunni um niður­skurð til kvikmynda­sjóða í fjárlögum vill stjórn Sambands íslenskra kvikmynda­fram­leiðenda, SÍK, koma eftir­farandi á framfæri:

Stjórn Sambands íslenskra kvikmynda­fram­leiðenda harmar þá stöðu sem upp er komin í kvikmynda­iðnaði, þar sem boðaður er niður­skurður í frumvarpi til fjárlaga 2023 sem gengur þvert gegn Kvikmynda­stefnu stjórn­valda til ársins 2030. SÍK ásamt öðrum hagaðilum greinarinnar í samráði við stjórn­völd hefur lagt mikla vinnu í gerð heild­stæðrar stefnu fyrir íslenska kvik­myndagerð sem ætlað er að styrkja íslenska menningu, tungu og samfélag.“

Einnig er komið inná að „niður­skurðurinn sem boðaður er til kvikmynda­sjóða í frumvarpi til fjárlaga 2023 nemur 433 milljónum króna og mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir fram­leiðslu verkefna sem eru þýðingar­mikil í listrænu og menningar­legu sambandi.

Aðgerðirnar ganga í berhöggi við Kvikmynda­stefnu til ársins 2030 þar sem lögð er áhersla á varð­veislu íslenskrar tungu, menningu, sjálfs­mynd þjóðarinnar, eflingu íslensks atvinnu­lífs og sterkt orðspor Íslands. Það er ljóst að sterkara sjóða­kerfi sem styður við fjöl­breytt íslensk kvik­myndaverk og setning nýs styrkja­flokks fyrir sjónvarps­þáttar­gerð er forgangs­verkefni innan Kvikmynda­stefnunnar enda tilgreint sem fyrsta aðgerð í annars metnaðar­fullri áætlun. Sá niður­skurður sem boðaður er mun þvert á móti hafa þær afleiðingar í för með sér að færri kvik­myndaverk verða framleidd og sérstakur styrkja­flokkur vegna gerðar sjónvarps­þátta mun ekki líta dagsins ljós.“

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Samsett mynd.

Í þessu samhengi lýsir SÍK einnig „yfir vonbrigðum með ummæli menningar- og viðskipta­ráðherra sem viðhöfð voru í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem ráðherra gaf til kynna að gagnrýnin byggði á misskilningi innan greinarinnar, um að viðbótar­framlög til kvikmynda­sjóða hefðu komið til vegna fjár­festingar­átaks í tengslum við heims­faraldur Covid-19.

Hið rétta er að viðbótar­innspýting í kvikmynda­sjóði var ákveðin í tengslum við eftir­fylgni Kvikmynda­stefnunnar. Fyrirsjáanleiki í stuðnings­umhverfi kvikmynda­iðnaðar skiptir sköpum. Ákvarðanir um fjár­festingu í verkefnum eru teknar á grund­velli opinberra vilyrða og áætlana.“

Að lokum er bent á að „um er að ræða verulegar fjár­festingar í hverju verkefni en ferli kvikmynda­verkefna frá hugmynd til sýningar telur oft á tíðum í fjölda ára. Það skiptir því verulegu máli að samræmi sé í opinberum yfir­lýsingum og stefnum og svo aðgerðum, til að mynda fjárlögum.

Stjórn sambands íslenskra kvikmynda­fram­leiðenda á nú í samtali við menningar- og viðskipta­ráðuneytið og ráðherra menningar- og viðskipta vegna stöðunnar sem upp er komin og vonast til þess að stjórn­völd bregðist við ákalli greinarinnar og endur­skoði umræddan fjárlagalið.

SÍK væntir áfram­haldandi uppbyggilegs samtals við menningar- og viðskipta­ráðherra um málið á næstu dögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“