Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

„Man ekki til þess að karlkynsleikstjóri hafi þurft að útskýra að hann hafi ekkert á móti konum“

Stjórn­málakonan Líf Magneu­dóttir tjáir sig um kvik­myndina Abbbababb, sem er eftir Nönnu Kristínu Magnúsdóttur:

„Að mörgu leyti myndi ég segja að Abbbababb sé femínísk mynd.“

Líf birtir skrif sín á samfélags­miðlinum Facebook, og vísar í grein á RÚV, þar sem rætt er við Nönnu um myndina; Líf er þó pínu hugsi yfir fyrir­sögninni greinarinnar á RÚV – sem er svona:

Ég hef ekkert á móti karl­mönnum.

Líf segir:

„Þess vegna finnst mér þessi fyrirsögn smá fyndin og reyndar viðbúin því konur í kvikmynda­bransanum (og mörgum öðrum list­greinum) þurfa oft að útskýra það ef konur eru í meirihluta í verkum þeirra eða ef þær gera breytingar á handritum eða leikgerð sem taka mið af raun­veruleika og/eða tilfinninga­lífi kvennna.

Og líka ef þær leiðrétta hlut kvenna og fjölga eða breyta hlut­verkum jafnvel þekktra leikverka.“

Og Líf er ánægð með það:

„Sjálfri finnst mér það sjálfsagt og útkoman oft velheppnuð. Það er meira skrifað fyrir karlkyns hlutverk heldur en kvenkyns og við þurfum ekkert að sætta okkur við það í dag.“

Hún bendir á að „nú hafa fjölmargar kvik­myndir verið gerðar á Íslandi um tilvistar­kreppu karla þar sem kven­hlutverkin eru fá. Ekki man ég hins vegar til þess að karlkyns­leikstjóri hafi þurft að útskýra af hverju eða halda því til haga að hann hafi ekkert á móti konum. Og líklega fengi hann sjaldan slíka spurningu.“

Líf segir að þótt hlutirnir í jafnréttis­málum hafi breyst til batnaðar þá „eigum við enn langt í land í svo mörgu – en þessi kvikmynda­frumraun Nönnu Kristínar í fullri lengd vekur með mér bjartsýni um að við erum algerlega á réttri leið.

Hugrekki og þor leik­stjórans og allra sem komu að myndinni er aðdáunar­vert – og svo segi ég nú bara: Drífið ykkur öll í bíó á Abbababb!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“