Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Eva Ruza reynir að hafa flækjustigið sem minnst: „Ég get orðið rosalega matsár“

Eva Ruza
Eva Ruza Mynd: Biggi Breiðfjörð

„Ég vil bara hafa matinn minn bragð­góðan og ég get orðið rosalega matsár. Sem er sérstakt, þar sem elda­mennskan mín hefur ekki alltaf heppnast og hafa aðrir þurft að þjást vegna hennar. Ég verð samt aldrei matsár við sjálfan mig. En ef einhver annar eldar vondan mat, þá er það allt önnur saga og þá verður Ruzan ekki sátt.“

Fékk ekki samhæfingu í vöggugjöf
Eva Ruza, þúsund­fjalasmiður er Matgæðingur Mannlífs þessa vikuna. Eva segist vera allt í senn hamfara­kokkur, ástríðu­kokkur, brussu­kokkur, smá subbu­kokkur og inn á milli góður kokkur.

„Mér var ekki gefin samhæfing líkamans í vöggugjöf, þannig að það þvælist stundum fyrir

Ljós­mynd­ari: Þorgeir Ólafsson

mér í elda­mennskunni. Ég er nýbúin að mölbrjóta lok á uppáhalds­pottinum mínum og skil ekkert hvernig það gerðist. Mér líður eins og ég hafi fleygt því í gólfið. Samhæfing líkamans um að kenna. Hendurnar voru ekki að tala saman.“

Eva segist halda það að hún hafi lagast mikið þegar kemur að elda­mennskunni;

„en svo byrja ég að elda og þá kemur í ljós að ég er bara alls ekkert búin að lagast. Ég elska samt rosalega mikið að elda og finnst ekkert skemmtilegra en að dunda mér við að elda og undirbúa. Eldhúsið og Siggi maðurinn minn, eru ekki alveg eins hrifin af uppá­tækjunum mínum því það er alltaf eins og hitabeltis­stormur hafi flogið inn um eldhúsið eftir að ég elda…en ég meina ef maturinn heppnast, þá er það það sem skiptir máli. Svo tekur uppþvotta­vélin og tuskan við restinni.“

Mastera réttinn
Um þessar mundir eru það asískar núðlur með nauta­þynnum sem hún Eva uppgötvaði hjá henni Berglindi Hreiðars á gotteri.is sem er í uppáhalds.

„Ég er orðin klárust í heimi að elda þær og hef smá áhyggjur af því að fjöl­skyldan fái leið á þessum rétt. Það væri pirrandi því ég er búin að mastera hann. En á meðan þau kvarta ekki, þá held ég bara áfram að elda hann.“

Á týpískum degi í lífi Evu fær hún sér alltaf hreina AB mjólk og múslí í morgunmat og hún segist elska það alltaf jafn mikið. Í hádeginu þá er ekkert betra en grænn smoothie. Í smoothie setur hún banana, epli, spínati, sítrónu, frosnu mangó, engifer, dass af vatni og dass af djús; „mixa í drasl og voila. Mjög ferskur og góður.“

Kvöld­maturinn er frekar venju­legur og reynir Eva á virkum dögum að vera ekkert að flækja hlutina neitt svakalega. Kjúlli, spaghetti, fiskur og þetta týpíska verður oftast fyrir valinu.

„Ég hef alltaf verið meðvituð um hvað ég borða og hvað ég gef fjöllunni að borða, þannig að ég reyni að hafa þetta hollt og gott og reyni að hafa flækju­stigið sem minnst.“

Vill ekki mat sem hún hefur ekki bragðað áður

Mynd úr einka­safni Evu Ruza

Eva segist vera með frekar einfalda bragð­lauka en hún vilji alls ekki sterkan mat, ekki of kryddaðan og hún borða ekkert sem hún veit ekki nú þegar hvernig bragðast.

„Ég byrjaði ekki að borða tómata og sveppi fyrr en ég var tvítug, held ég. Mér fannst svo ógeðsleg áferðin á þeim og mér fannst þeir ,,virka“ svo vondir. Greyið mamma þurfti alltaf að sigta sveppa­súpu fyrir mig á jólunum svo að ég myndi borða hana. Hef samt aðeins þroskast í dag og borða sveppi og tómata eins og enginn sé morgun­dagurinn. Ég hljóma næstum því eins og 12 ára sonur minn núna.“

Skemmtilegt er frá því að segja að eitt skiptið eldaði Eva kjúkling og franskar með uppþvotta­bursta. Þau hjónin voru nýflutt í fyrstu íbúðina sína og buðu bestu vinkonu í mat.

„Ég ætlaði að vera rosa grand á því og elda heilan kjúkling og fröllur í fyrsta sinn. Svo sitjum við inn í stofu á meðan maturinn mallar og Auður vinkona mín segir; ,,það er rosaleg bruna­plast lykt hérna“ . Hamfara­kokkurinn var að sjálfsögðu ekki búinn að finna neina lykt. En við förum inn í eldhús og kíkjum inn í ofninn. Þá gaus þessi rosalega lykt beint i fésið á okkur. Ég ríf plötuna út úr ofninum. Hangir ekki helvítis uppþvotta­burstinn neðan úr plötunni allur snar­bráðnaður fastur við plötuna. Þá hafði ég kippt honum óvart með þegar ég setti plötuna í ofninn og var búin að elda hann í rúman klukku­tíma. Kjúklingurinn var hins vegar bragð­góður og engum varð meint af…nema burstanum. Ég notaði hann samt til að vaska upp eftir kvöldið. Virkaði fínt. Mæli samt ekki með að elda þá.“

Asískar núðlur

Fyrir 4-6 manns

  • 375 g núðlur (6 „blocks“)
  • 500 g nautakjöt
  • Brokkolihaus
  • 4-5 gulrætur
  • ½ blað­laukur
  • Kikkoman soyasósa
  • Kikkoman teriyaki sósa
  • Hoisin sósa
  • Sweet chili sósa
  • Ólífuolía
  • Salt, pipar, hvítlauks­duft
  • 100 g ristaðar og saltaðar kasjúhnetur

Aðferð

  1. Grillið/eldið nauta­lundina og hvílið á meðan þið útbúið núðlurnar.
  2. Skerið brokkoli í bita og lauk og gulrætur í strimla.
  3. Steikið brokkoli og gulrætur á meðalháum hita upp úr vel af ólífuolíu í stutta stund. Hellið 4 msk af vatni og 2 msk af soyasósu á pönnuna og hrærið vel í þar til vökvinn gufar upp.
  4. Bætið þá lauknum saman við ásamt meira af ólífuolíu og kryddið til með salti, pipar og hvítlauks­dufti.
  5. Blandið á meðan saman í skál 6 msk af Hoisin sósu, 2 msk soyasósu, 2 msk teriyaki og 4 msk sweet chili sósu og hellið yfir grænmetið.
  6. Sneiðið kjötið í þunna strimla og blandið saman við.
  7. Sjóðið núðlurnar samkvæmt leið­beiningum á pakka og hrærið vel saman við í lokin, toppið með kasjúhnetum.

Smelltu hér til að lesa allt um málið í brakandi fesku helgar­blaði eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto