Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Einar veðurfræðingur hjólar í Moggann – Illugi segir Davíð hata starfsmenn sína

Einar Sveinbjörnsson veður­fræðingur gagnrýnir Morgun­blaðið harðlega á Facebook fyrir að endur­birta blogg Jóns Magnússonar, fyrr­verandi þingmanns. Jón efast um hlýnun jarðar á sama tíma og ein versta hita­bylgja sögunnar stendur yfir.

Einar skrifar: „MOGGINN TEKUR NIÐUR.. að hefja upp og endur­birta bullið í Jóni Magnússyni um lofts­lagsmál. Einn af mörg hundruð pistlum í svipaða veru hjá Jóni og hann má vitanlega halda fram sinni sérvisku og loftslags­afneitun. En að Morgun­blaðið skuli taki þetta upp og vekja sérstaka athygli vekur furðu svo ekki sé meira sagt. Ekki síst nú þegar áhrif loftslags­breytinga birtast Evrópu­búum með skýrari hætti en oftast áður.“

Einar vísar í Staksteina Morgun­blaðsins en þar birtir blaðið oft skoðanir kynlegra kvista. Nær undan­tekninga­laust í jákvæðu ljósi. Í dag segir þar: „Jón Magnússon lögmaður bendir á þá löngun „frétta­manna“ að ýta undir trúar­setningu um manngert veður. Hefð­bundin háhitatíð er hafin upp í heima­tilbúin heimsmet: — Veður­fræðingur gærdagsins var greini­lega óviðbúinn tekinn til að vitna um að þetta sýndi ótvírætt hlýnun af manna­völdum. Hann varðist vel, en sagði í lokin að mars­mánuður 2022 væri sá hlýjasti sem mælst hefur. Ekki urðum við, sem vorum á Spáni í mars, vör við það og skv. Alþjóða­veðurfræði­stofunni NOAA var fjarri því að hitamet hefði fallið á Spáni í mars sl.“

Máli sínu til stuðnings vísar Jón í erlenda frétt. „Í frétt á Al Jazeera um daginn var sagt að mikill flóttamanna­straumur frá Tigrahéruðum Eþíópíu væri vegna loftslags­breytinga og ófriðar í landinu. — Þetta var rangt. Loftslags­breytingar höfðu ekkert með þetta að gera, heldur innrás Eþíópíu­hers inn í Tigrahéruðin undir forustu friðar­verðlauna­hafa Nóbels, sem nú ræður ríkjum í landinu. — Í Eþíópíu ríkti sár hungurs­neyð um og eftir 1970 vegna gríðarlegra hita og þurrka. — Þá var ástandið mjög alvarlegt. Nú er staðan allt önnur og mun betri. — Sumir segja að aukið koltvísýrings­magn í andrúms­loftinu bæti vaxtar­skilyrði jarðar­gróða.“

Einar veður­fræðingur er ekki sá eini sem gagnrýnir þessi skrif. Það gerir einnig Illugi Jökulsson. „Ég á vini sem vinna á Morgun­blaðinu og ber virðingu fyrir fagmennsku margra starfs­manna þar. Og það er langt síðan ég tók þann pól í hæðina að vera ekki að óþörfu að snúa hnífum í sárum þeirra yfir því heimsku­lega galli sem stöðugt virðist vella úr penna annars ritstjóra blaðsins, og starfs­mennirnir hljóta flestir að blygðast sín fyrir. — En stundum blöskrar manni,“ segir Illugi.

Hann segir þessi skrif sína hugar­ástand helstu yfirmanna á Morgun­blaðinu. Þeir séu djúpt sokknir í samsæris­kenningaraus. „Látum vera að Morgun­blaðið, sem fyrrum bar sig aðeins saman við helstu stórblöð Vestur­landa, sé nú í ritstjórnar­efni sínu orðið málgagn samsæris­kenninga, Trumpisma og botn­lausrar lágkúru í endur­ritunum sínum á sögunni. Látum vera þó blaðið hampi nú í Staksteinum sínum rugli eins og Jón Magnússon lögmaður býður hér upp á? — En að ritstjóri blaðs, sem vill láta taka sig hátíðlega, sé svo djúpt sokkinn í fyrirlitningu sína á raun­verulegri blaða­mennsku að hann setji gæsa­lappirnar sínar hér utan um „frétta­menn“, það er einhvern veginn punkturinn yfir hið endanlega i. — Góðu vinir á Morgun­blaðinu, finnst ykkur þetta í lagi? Finnst ykkur ekki að fyrir­litning ritstjórans hitti ykkur sjálfa fyrir?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram