Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Pétur er allra minnsti hluthafi Festis: „Þeir gerast ekki minni“

Pétur Þorsteinsson
Pétur Þor­steins­son Mynd: BG

„Ég er allra minnsti hluthafi í heiminum held ég,“ segir Pétur Þorsteinsson, en hann var staddur á hluthafa­fundi Festis í síðustu viku þegar ný stjórn félagsins var kosin og ræddi við blaðamann á staðnum um atburði fundarins. Pétur segist eiga 117 eða 217 króna hlut í fyrir­tækinu, hann er ekki alveg viss hvort.

„Já, þeir gerast ekki minni, hlut­hafarnir. Þeir milljarða­mennirnir sem mættu þarna, hentu út og komu nýju fólki inn; þeir náttúru­lega ráða þessu og stjórna.

Lítið er lunga í lóuþræls­unga. Þó mun enn minna mannvitið kvinna. Eins og segir í textanum. Þannig að ég er sá allra, allra minnsti bara, sem ég held að sé til. En nú er maður þarna, nú er maður hluthafi. Þessi dreifða eignar­aðild sem er verið að tala um að þessi fyrirtæki eigi að sinna og allt þetta kjaftæði fram og aftur. Þetta er hund­gamalt sem ég átti í þessu.“

Lagði til að félagið myndi heita Sundrung

Pétur titlar sig sem æskulýðs­fulltrúa á öldrunar­heimilinu Grund. Hann starfar einnig sem prestur Óháða safnaðarins.

Pétur segist hafa keypt hlutinn smáa mestmegnis að gamni á sínum tíma. „Þannig er að ég er mikill áhuga­maður um hval­veiðar – guð skapaði hvali til að éta þá – og þá var þetta svona hluti af því að ég vildi sýna Kristjáni Loftssyni stuðning.“ Hann rekur það hvernig Olíu­félagið hf. sem þá var og hét breytti um nöfn og eigendur með tímanum, og rann svo inn í N1, sem svo varð að Festi. Alltaf kúrði lítill hluti Péturs í félaginu á sínum stað.

Þrátt fyrir að vera sennilega minnsti hluthafi félagsins hefur Pétur látið sig deilurnar innan þess varða undan­farið, eftir að stjórnin, sem nú hefur að hluta til verið stokkað upp í, sagði Eggerti Þór Krist­óferssyni upp starfi sínu sem forstjóra fyrir­tækisins. Það var til að mynda Pétur sem setti það á dagskrá á hluthafa­fundinum að nafni félagsins yrði breytt úr Festi í Sundrung. Hann lagði það þó sjálfur til á fundinum að hans eigin tillaga yrði felld.

„Svo eru þessar kjaftasögur um Vítalíu“

Pétur segist ekki þekkja til aðdrag­anda uppsagnarinnar en hann hafi sannarlega orðið var við mikla óánægju með framkvæmd hennar. „Stjórnin vildi að hann myndi hverfa en það var kannski aðferðin að uppsögninni.. Hann sagði það, Guðjón, að liðinu gengi vel og þá væri hægt að fá nýjan liðsmann, leiðtoga, til þess að stjórna því áfram. Nú veit ég ekkert um það. En svo eru þessar kjafta­sögur um Vítalíu.“

Líkt og þekkt er orðið sakaði Vítalía Lazareva meðal annars þáverandi stjórnar­formann Festis, Þórð Má Jóhannesson, um kynferðis­brot gegn sér í byrjun árs, sem hún sagði hafa átt sér stað í sumar­bústað í desember árið 2020. Annar maður sem hún bar ásakanir á í tengslum við sömu ferð er einka­fjárfestir í Festi, Hreggviður Jónsson. Þórður Már Jóhannesson steig til hliðar sem stjórnar­formaður Festis eftir að ásakanirnar komu fram.

Vítalía hefur sjálf lýst því að hún hafi rætt mál sitt við forstjórann, Eggert Þór Krist­ófersson. Hún segir hann hafa verið einn fárra sem á hana hlustuðu og lýsir því að framkoma hans hafi verið til fyrir­myndar. Þegar tilkynnt var um uppsögn Eggerts var því velt upp hvort hún gæti tengst máli Vítalíu.

„Þarna var réttlætiskennd minni brugðið“

„En það var bara þessi aðferða­fræði, hvernig var farið að þessu,“ segir Pétur. Hann segist aðeins hafa kynnst Eggerti af góðu. „Bara prýði­legur drengur. Þannig að það er ekkert svoleiðis sem ég veit til þess að hafi valdið þessari uppsögn. En svo er það tilkynningin til Kaup­hallarinnar sem hafði misfarist – hver það var sem sagði upp og hverjum. Svo kom í ljós að það var ekki rétt að hann hefði sagt upp, heldur hafði honum verið sagt upp.“

Hann segir fundi í Festi fram að þessu hafa farið fram í mestu friðsemd, þótt hann hafi sjálfur að vísu ekki sótt þá alla. „En þarna var réttlætis­kennd minni brugðið. Þess vegna kom ég með þessa tillögu. Þannig að eftir 100 ár, þá verður saga félagsins kannski skráð, ef það verða ekki einhverjir hrægammar búnir að éta það í smæstu myrkur og ystur. Þá verður þessa fundar minnst og þessarar samkomu, þannig að menn læri á þessu. Ég er smá kenni­maður í þessum efnum,“ segir Pétur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram