Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Tollfrjáls kjúklingur flæðir inn á markaðinn – Heiðurskonsúll Rússa flytur inn kjúkling frá Úkraínu

Ágúst Andrésson. Myndin er samsett
Ágúst Andr­és­son. Myndin er sam­sett

Ágúst Andrésson, yfirmaður kjöt­vinnslu hjá Kaup­félagi Skagfirðinga, er jafnframt heiðurs­konsúll Rússlands á Íslandi. Hann er ásamt öðrum stjórn­endum KS ábyrgur fyrir innflutningi á kjúklingi frá Úkraínu. Á síðasta ári flutti Kjöt­vinnslan Esja gæðafæði, sem er í eigu KS, inn um 40 tonn af kjúklingi frá Úkraínu í gegnum Litháen. Þá flutti Kjöt­markaðurinn, sem tengist einnig KS, inn rúmlega 23 tonn á síðasta ári og byrjun þessa árs. Landbúnaðar­afurðir frá Úkraínu eru toll­frjálsar eftir að Alþingi samþykkti frumvarp á síðasta ári til stuðnings Úkraínu­mönnum í stríðinu við Rússa. Gríðar­legir hagsmunir eru undir enda kostar um 600 krónur að flytja inn hvert kíló sem þá leggst ofan á verðið á kjötinu.

Gagnrýnt er af íslenskum kjúklinga­bændum að kjúklingurinn sem Esja flytur inn sé ekki uppruna­merktur og jafnvel látið í það skína að hann sé ræktaður og fram­leiddur á Íslandi. Þykir skjóta skökku við að fyrirtæki í eigu bænda grafi undan íslenskum hagsmunum. Þess utan er gagnrýnt að toll­frelsi gildi um vöru sem ekki er hefð fyrir að flytja inn til landsins. Þetta var í fyrsta sinn sem kjúklingur var fluttur inn frá Úkraínu sem þýddi að skilt er að gera áhættumat áður en kjúklingurinn fer í sölu innanlands. Áhættumat var ekki gert í tilviki Skagfirðinganna og fóru alls 80 tonn af úkraínskum kjúklingi inn í landið í fyrra­haust. Gagnrýnt er að varan hafi ekki verið innkölluð eftir að í ljós kom að ekkert áhættumat hafði farið fram.

við höfum tekið ákvörðun um að borga fullan toll

Aðrir innflytjendur fengu ekki að flytja inn kjúkling án þess að slíkt mat færi fram. Þeirra á meðal er Ó. Johnson og Kaaber sem voru með allt sitt fast í tolli. Ágúst Andrésson fullyrti við Bænda­blaðið að Esja hefði greitt fullan toll af kjúklingnum en þeir ættu hugsanlega endur­greiðslu­rétt. „En við höfum tekið ákvörðun um að borga fullan toll af þessu eins og öðru,“ segir hann við Bænda­blaðið. Ekki liggur fyrir hvort fyrir­tækinu var gert að greiða þennan toll ásamt álagi sem kemur til ef rangar upplýsingar eru gefnar um vöru.

Guðmundur Svavarsson, formaður deildar kjúklinga­bænda hjá Bænda­samtökunum, segir við Bænda­blaðið að innflutningurinn vekji ugg. Áhyggjur manna snúi að því að kjötið komi frá vinnslum sem lúti ekki sömu heilbrigðis­kröfum og gerist hérlendis. Við höfum áhyggjur af mikilli sýkla­lyfjanotkun og enn fremur hvernig staðið er að fram­leiðslunni með tilliti til dýra­velferðar og sjúkdóms­valdandi örvera,“ sagði hann við Bænda­blaðið.

Nú er komið á daginn að sprenging hefur orðið í innflutningi af kjúklingi. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru flutt inn 107,5 tonn af kjúklingi frá Úkraínu í nýliðnum janúar. Stærstur hluti af því er, samkvæmt innflutnings­tölum, af svokölluðum lausagöngu­hænsnum eða 102,2 tonn. Guðmundur Svavarsson sagði við Mannlíf að mikil áhætta væri samfara slíkum innflutningi ef litið væri til sjúkdóma­hættu.

Uppfært: Guðmundur Gíslason, framkvæmda­stjóri Kjöt­markaðarins, segir við Mannlíf að engin mistök hafi verið gerð þar er varðar innflutning á kjúklingi.

„Kjöt­markaðurinn flutti ekki inn kjúkling á síðasta ári frá Úkraínu heldur fimm tonn frá Litháen. Kjöt­markaðurinn hefur flutt inn á þessu ári 18 tonn af kjúkling frá Úkraínu og er með öll leyfi fyrir því. Kjúklingurinn frá Úkraínu er gæðavara alinn á maís og slátrað í slátur­húsi sem er með BCR vottun,“ skrifar Guðmundur. Hann segir fyrirtæki sitt hafa greitt 18 prósent toll og 540 kr./kg samtals yfir 640 kr./kg

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim