Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Heimskortið sem þú þekkir er rangt

Afríka 14 sinnum stærri en þú hélst

SÞ samþykkja stórbreytingu
SÞ sam­þykkja stór­breyt­ingu Henda gamla kort­inu í ruslið Mynd: UN

Allsherjar­þing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt sögulega ályktun undir yfir­skriftinni „Correct the Map“ (Leðréttum kortið), þar sem ríki og alþjóða­stofnanir eru hvött til að hætta notkun hins hefð­bundna Mercator-korta­grunns. Þess í stað verður tekin upp svokölluð Equal Earth-korta­vörpun, sem sýnir raun­veruleg flatarmáls­hlutföll landa og álfa á jörðinni.

Breytingunni er ætlað að leiðrétta aldagamla skekkju í heims­myndinni, en ályktunin var keyrð áfram af Afríku­sambandinu með Tógó í broddi fylkingar. Alls greiddu 164 ríki atkvæði með breytingunni, þar á meðal fyrrum nýlendu­veldi á borð við Bretland og Frakkland. Banda­ríkin voru eina ríkið sem kaus gegn ályktuninni, en sex lönd sátu hjá.

Aldargömul skekkja leiðrétt

Hefð­bundna Mercator-kortið á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1569. Það var upphaf­lega hannað af flæmska korta­gerðar­manninum Gerardus Mercator í þeim eina tilgangi að nýtast sjófar­endum við siglingar, þar sem vörpunin heldur áttum beinum. Galli vörpunarinnar er hins vegar sá að hún teygir verulega úr landsvæðum eftir því sem nær dregur pólunum en þjappar saman svæðum við miðbaug.

Afleiðingin er sú að á Mercator-kortinu líta Grænland og Afríka út fyrir að vera álíka stór. Í raun­veru­leikanum er Afríka hins vegar fjórtán sinnum stærri en Grænland. Þá lítur Evrópa út fyrir að vera mun stærri en Suður-Ameríka, þótt hið gagnstæða sé rétt.

Talsmenn breytingarinnar segja þessa skekkju hafa viðhaldið euro-sentrískri heimsmynd og nýlendu­hugsun, þar sem ríki á norður­hveli jarðar sýnast stærri og áhrifa­meiri en þau eru, á kostnað ríkja í Afríku, Suður-Ameríku og Suður-Asíu. Til marks um stærðina má í raun koma öllum Banda­ríkjunum, Kína, Indlandi, Japan, Mexíkó og stórum hluta Evrópu fyrir innan landamæra Afríku.

„Vitrænt réttlæti“ í skólastofum

Nýja Equal Earth vörpunin, sem hönnuð var árið 2018, varðveitir rétt flatarmál landmassa á jörðinni á nákvæman hátt. Hún sýnir heiminn eins og hann er í raun, þótt hún breyti eilítið ytri lögun landa á jðrunum til að ná fram réttum hlut­föllum.

Fulltrúar Afríku­sambandsins fögnuðu niður­stöðunni og sögðu hana mikilvægt skref í átt að „vitrænu réttlæti“. Markmiðið sé að tryggja að komandi kynslóðir og skólabörn alist upp við rétta sýn á jörðina og raun­verulegt vægi ríkja hennar.

Frakkland hefur þegar tilkynnt að franska utan­ríkis­ráðuneytið muni alfarið hætta notkun Mercator-kortsins í sínum gögnum. Breytingin nær eingöngu til almennra korta, skólabóka og opinberra miðla SÞ, en mun ekki hafa áhrif á sjó- eða flug­leið­sögukort þar sem Mercator-vörpunin nýtist áfram best vegna eigin­leika sinna.

Bandríkin kusu á móti þessum breytingum vegna þess að með nýja kortinu minnkar vægi Banda­ríkjanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna