Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lífsreynslusaga Mannlífs: Dagurinn sem ég gleymdi að hugsa um hann

Ást er fyrirbæri sem ég taldi mig þekkja. Þetta var fremur einfalt, ef ég elska einhvern þá þarf ég að sanna mig, ég þarf að sýna fram á að ég sé þess virði að elska.

Ég fæddist inn í fremur leiðinlegar aðstæður, foreldrar mínir voru eldri en vanalegt þykir og voru fyrir löngu síðan orðin þreytt á hvort öðru.

Ég sá aldrei ást á milli foreldra minna og fékk því skakka upplifun á samböndum frá byrjun.

Í seinni tíð lærði ég að þau væru mannleg, eins og hver annar. Upplifun barna á foreldrum sínum er oft sú að þau séu eins konar æðri máttur sem skorti tilfinningar, það var allavega staðreynd í mínu tilfelli. Ég sá þau aldrei gráta eða hlæja, þau bara voru þarna. Stundum rifust þau, oftast lögðu þau ekki einu sinni á sig að hækka róminn. Ég fæddist inn í tannhjól sem löngu var skorðað, rútínan var ákveðin og ræturnar fastar.

Þegar ég varð unglingur fór ég að sækja í athygli frá hinu kyninu. Mig dreymdi um stíft samband, uppfullt af hatri, gremju og ást. Var það ekki annars þetta eftirsóknar­verða við hjónabönd?

Ég fór snemma að tengja vondar tilfinningar við ást. Ég þráði umhyggju og viðurkenningu en fæddist sem viðkvæm tilfinninga­vera inn í tannhjól kulda og hörku. Móðir mín var óhamingjusöm, það vissu allir. Ég vissi það líka en var sannfærð um að ég væri undir­staða vansældar hennar. Kannski mætti kalla þetta eins konar misskilning, staðreyndin var sú að ég kom inn í líf óhamingju­samrar móður, en með augum lítils barns er auðvelt að sjá sann­leikann í röngu ljósi. Mamma var pirruð og reið við mig, hún öskraði á mig. Það hlaut að vera ég sem stóð í vegi fyrir að hún gæti lifað hamingju­ríku lífi.

Það kemur líklega ekki á óvart að ég hafi sjálf endað í mann­skemmandi samböndum. Mér var aldrei kennt hvernig karlmaður, eða nokkur annar, ætti að elska mig.

Ég kynntist fyrsta kærastanum mínum 18 ára og var með honum í nokkur ár. Hann var skólabókar­dæmi um alkóhól­ista. Ég kenndi sjálfri mér um að hann þyrfti að drekka, ég væri svo skapstór og erfið. Hvernig ætti nokkur maður að þola mig ódeyfður? Samband okkar endaði þegar að hann réðst á mig.

Ég þoldi aldrei að vera ein og var fljót að finna mér næsta mann sem gæti staðfest það að ég væri einskis virði. Engin undan­tekning var þar á þegar fyrsta sambandi mínu lauk. Hann bauð mér í bíltúr, ég þurfti ekki mikinn umhugsunar­frest enda líklega myndarlegasti maður sem ég hafði nokkurn tímann séð.

Ég man skýrt eftir augna­blikinu sem ég horfði fyrst í augun á honum, á bak við fegurðina var óútskýranleg illska. Þetta augnablik var fyrsta af mörgum sem voru skýr merki þess að ég hafi átt að forða mér. Hann náði mér strax, ég hafði aldrei verið eins heltekin af neinu. Líklega hefur ekki verið aftur snúið frá fyrsta augn­sambandinu, ég varð hugfangin, bæði af fegurðinni og illskunni.

Við tóku ár af ofbeldi, þráhyggju, neyslu og hatri. Mér leið eins og fanga, sama hversu oft ég endaði sambandið og sannfærði sjálfa mig um að nú væri þetta búið, skreið ég alltaf aftur til baka. Ég var viss um að þarna væri ég að upplifa sterkari ást en nokkurn tímann áður, þetta væri það sem allir væru að eltast við.

Sorgin þegar hann hafnaði mér og léttirinn þegar hann tók við mér aftur kom mér í eins konar vímu. Ég hugsaði um lítið annað en hann, líf mitt fór að snúast um það að fá frá honum viðurkenningu, það gerðist aldrei. Líkamlega ofbeldið var ekkert í líkingu við það andlega, ég man sárs­aukann svo skýrt. Að lokum skildi hann mig eftir eins og brunarúst, gjör­samlega tóma og brotna. Hans verki var lokið.

Það tók mig þrjú ár að ná jafnvægi eftir hann, skilgreining mín á ást var skakkari en nokkru sinni fyrr. Fyrst um sinn gerði ég lítið annað en að deyfa mig, ég var hætt að nota hugbreytandi efni og sótti því í aðrar leiðir. Ég þráði ekki lengur viðurkenningu, frekar vildi ég vanlíðan og hatur. Ég var komin á þann stað að vera fullkomlega sama um aðra og fór eins og jarðýta í gegnum fjöldann allan af karl­mönnum, í leit að einhverjum tilfinningum.

Ég fann þær ekki, hvorki slæmar né góðar. Mér var einfald­lega sama. Á milli þess sem ég reyndi að deyfa mig var ég með þráhyggju fyrir ofbeldis­manninum og lét eins og ég væri á launum við að fylgjast með samfélags­miðlunum hans. Þetta ástand varði í tæp tvö ár en ég lærði rólega að átta mig á eigin virði. Ég skildi betur hvaðan ég væri að koma og hversu lítið ég vissi um ást og heilbrigð sambönd.

Þegar ég kynntist manninum mínum reyndi ég ítrekað að fara frá honum, enda alveg viss um að ég bæri ekki vott af rómantískum tilfinningum til hans. Hann veitti mér öryggis­tilfinningu, sannfærði mig um að ég væri frábær og var minn allra besti vinur, meira var það ekki. Ég var aldrei hrædd um að missa hann, enda hafði hann ekki gefið mér ástæðu til þess. Hann reyndi ekki að breyta mér eða staðfesti á nokkurn hátt að ég væri ömurleg, það vantaði allt upp á það sem ég skilgreindi sem ást.

Blessunar­lega gafst hann aldrei upp á mér og eftir nokkrar tilraunir áttaði ég mig á því hvað það væri sem fengi mig til þess að hugsa svona mikið til hans, hver væri ástæða þess að ég saknaði hans þegar hann fór.

Ég fékk loksins að upplifa ást, hún var ekki vond. Eftir nokkurn tíma af stríði við mínar eigin hugsanir rann upp sá dagur sem ég gleymdi einfald­lega að hugsa um ofbeldis­manninn.

Dagarnir urðu fleiri, ég sleppti hægt og rólega takinu.

Ég var frjáls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim