Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Iðrast eftir áratug: „Vildi óska að ég hefði haft hugrekki – Málið hefur lengi hvílt þungt á mér“

Magnús Orri Schram skrifar á Facebook-síðu sína að hann vilji „biðjast afsökunar á mínum hlut í Lands­dómsmálinu.“

Hann iðrast þess að hafa tekið þá ákvörðun að það hafi verið rétt að vísa málum Geirs H. Haarde, Árna M. Mathiesen og Ingibjargar Sólrúnar Gísla­dóttur, til Landsdóms.

Dómur féll í málinu í apríl árið 2012, og því hefur Magnús Orri haft nægan tíma til að velta þessu fyrir sér. Og hefur nú komist að endanlegri niður­stöðu, sem er eftirsjá og afsökunar­beiðni.

Magnús Orri sat árin 2009 og 2010 fyrir hönd Samfylkingarinnar í þingmanna­nefnd sem hafði það hlutverk að fjalla um skýrslu Rann­sóknar­nefndar Alþingis.

Komst meirihluti nefndarinnar að þeirri niður­stöðu að höfða ætti mál gegn fjórum fyrr­verandi ráðherrum í ríkis­stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðis­flokks.

„Ég vil biðjast afsökunar á mínum hlut í Lands­dómsmálinu Fyrir tólf árum ákvað meirihluti Alþingis að vísa máli Geirs H. Haarde til landsdóms. Á þeim tíma sat ég á Alþingi og í nefnd þingmanna sem fjallaði um Rann­sóknar­skýrsluna og hvernig ætti að taka á lögum um ráðherra­ábyrgð.

Mín afstaða var þá að rétt væri að vísa málum Geirs H. Haarde, Ingibjargar Sólrúnar Gísla­dóttur og Árna M. Mathiesen til Landsdóms. Þeirri ákvörðun sé ég eftir.“

Hann segir einnig að „í dag vildi ég óska þess að ég hefði haft hugrekki til að tala fyrir því að umfjöllun um ábyrgð ráðherra hefði lokið á vettvangi nefndarinnar. Á sínum tíma lét ég andann í þjóð­félaginu hafa áhrif á mína afstöðu, þegar það hefði verið rétt ákvörðun að vísa engum málum til Landsdóms.“

Bætir við:

„Ég er sann­færður um að þau sem voru til umfjöllunar – Geir H. Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir, Árni M. Mathiesen og Björgvin G. Sigurðsson, hafa unnið að heilindum við erfið störf í yfir­þyrmandi aðstæðum.

Ég hef persónu­lega beðið þau afsökunar á ábyrgð minni og vil einnig gera það hér, með opinberum hætti.

Ég var nýlega spurður að því hvort ég væri enn sömu skoðunar varðandi ákvörðun nefndarinnar og Alþingis, um að vísa málum ráðherranna til Landsdóms og svarið er að ég er það ekki. Málið hefur lengi hvílt þungt á mér og þótt ekki sé hægt að taka aftur þessi mistök þá er mikilvægt að gangast við þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“