Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Bryndís Haraldsdóttir: „Mikið var um sjálfsvíg“

Bryndís Haraldsdóttir
Bryndís Har­alds­dóttir

„Ég hef starfað í Sjálfstæðis­flokknum í um 20 ár, fyrst á vettvangi sveitar­stjórnar og svo nú á þinginu. Ég hef tröllatrú á flokknum bæði grunn­stefnu hans – sem ég tel bestu stefnuna fyrir Ísland og íslenska þjóð, enda hefur það einmitt sýnt sig að framfarir okkar á síðustu 100 árum hafa leitt íslensku þjóðina úr sárri fáttækt í að vera það samfélag í heiminum þar sem velsæld er hvað mest – en ég hef líka svo mikla trú á gras­rótinni og flokks­starfinu, enda flokkurinn stór og hefur á að skipa öflugu fólki um land allt sem vinnur undir merkjum flokksins í sínu samfélagi,“ segir Bryndís Haralds­dóttir alþingis­maður sem hefur gefið kost á sér sem ritari Sjálfstæðis­flokksins. „Ég hef líka lengi verið á þeirri skoðun að við getum gert enn betur. Starf ritara snýr fyrst og síðast að innra starfi flokksins. Ég hef ýmsar hugmyndir um hvernig hægt er að tengja betur saman fulltrúa okkar í sveitar­stjórnum um land allt og hvernig hægt sé að styðja þetta fólk betur og tengja okkur öll sem á vettvangi flokksins vinnum.“

Á COP 26 í Glasgow.

Horft sé til hagsmuna barnsins

Hvers vegna fór Bryndís upphaf­lega í stjórnmál?

„Upphaf­lega fór ég í stjórnmál í sveitar­félaginu mínu, Mosfellsbæ, vegna þess að ég brann fyrir leik­skólamálum og skóla­málum; og geri það að sjálfsögðu enn. En sem ung móðir fann ég fyrir því gati sem til staðar var frá því fæðingar­orlofi sleppti, dagforeldrar og svo leikskóli. Það hefur margt batnað í þessum mála­flokki síðan þá en dóttir mín er 22 ára. En því miður heyrum við enn sögur af því hversu margar fjöl­skyldur eru í vanda og á það þá sérstak­lega við um Reykjavík.

Hér er um stærsta jafn­rétt­is­mál kynj­anna að ræða.

Fáir orlofs­dagar ungs fólks og svo margir skipulags­dagar og lokanir leikskóla á sumrin eru þættir sem mér fannst algjör­lega ótækir. Ég veit að mörg sveitar­félög eru að standa sig vel í þessum efnum en önnur ekki en svo hefur fæðingar­orlofið auðvitað verið lengt. En þrátt fyrir að margt sé vel gert horfum við enn fram á að verkefnin eru ærin. Þekkingin á mikilvægi leik­skóla­stigsins hefur líka aukist mikið og það eru krefjandi og spennandi verkefni fram undan í uppbyggingu leik­skóla­stigsins fyrir yngri börn. Við þurfum að tryggja að ávallt sé horft til hagsmuna barnsins og að þau njóti sem mestra samvista við báða foreldra og að foreldrar fái þjónustu við hæfi. Öflug og góð þjónusta við börn á þessum aldri er bæði mikilvæg fyrir þau og þroska þeirra en líka fyrir fjöl­skyldurnar og hér er um stærsta jafnréttismál kynjanna að ræða.“

Hvers vegna kaus Bryndís að ganga í og vinna fyrir Sjálfstæðis­flokkinn?

„Ég setti mig vel inn í málin áður en ég skráði mig í flokkinn. Ég skoðaði stefnur þeirra flokka sem þá voru til og komst fljótt að því að grunn­stefna Sjálfstæðis­flokksins talar til hjarta míns. Trú flokksins á einstaklinginn er líklega það sem mér finnst mikil­vægast; það að trúa á markaðinn og takmörkuð ríkis­afskipti er það sem talar til hjarta míns vegna þess að ég trúi því að sú leið sé best til að tryggja hér öflugt velferðar­ríki.“

Á þingi þing­for­seta smá­ríkja í Svart­fjalla­landi.

Loftslagsbreytingar

16 ára reynsla úr sveitar­stjórnar­málum, hún var bæjar­fulltrúi í Mosfellsbæ í átta ár og vara­bæjar­fulltrúi í átta ár þar á undan.

„Ég var lengst af formaður skipulags­nefndar á mesta uppbyggingar­skeiði í bæjar­félaginu. Ég var jafnframt formaður bæjarráðs, sat sem forseti bæjar­stjórnar, var stjórnar­formaður Strætó, sat í svæðis­skipulags­nefnd og hef gegnt ýmsum trúnaðar­störfum á vettvangi sveitar­félaganna. Árið 2016 varð ég svo þingmaður, en ég hafði reyndar verið vara­þingmaður á árunum 2005-2007, ég er formaður allsherjar og menntamála­nefndar og sit í fjár­laganefnd. Áður hef ég setið í efnahags- og viðskipta­nefnd, utan­ríkismála­nefnd og verið vara­forseti þings. Í þing­störfunum hefur dýrmæt reynsla mín úr sveitar­stjórn nýst vel.“

Bryndís segist lengi hafa haft mikinn áhuga á umhverfis­málum. „Á vettvangi sveita­stjórna áttaði ég mig fljótt á því hvað skipulags­málin skipta miklu máli þegar kemur að umhverfis­málum. Ég held að því miður höfum við of seint farið að horfa til aðlögunar að loftslags­breytingum. En á sama tíma og við þurfum að minnka útblástur og áhrif okkar á náttúruna þá þurfum við líka að sætta okkur við þær breytingar sem orðnar eru og munu verða. Við verðum að hugsa í öllu skipulagi og innviða­uppbyggingu um það hvernig við tryggjum öryggi okkar. Líklega eru loftslags­breytingar okkar helsta vá.

Við þurfum að verj­ast ógn­inni og nýta tæki­færin.

Ísland er norðurslóða­ríki og á norðurslóðum sjást best þær gríðar­legu breytingar sem eru að verða. Þar hlýnar þrisvar sinnum hraðar en annars staðar á jörðinni og áhrifin eru eftir því. Þessar breytingar eru ógnvekjandi en í þeim geta líka falist ákveðin tækifæri. Við þurfum að verjast ógninni og nýta tækifærin,“ segir Bryndís sem leiddi þver­pólitíska nefnd sem vann að endur­skoðaðri norðurslóða­stefnu sem þingið samþykkti á síðasta kjör­tímabili.

Á hlaupum á Fimmvörðuhálsi.

Elskar fjallahlaup

Bryndís er þriggja barna móðir úr Mosfells­bænum en þar hefur hún búið frá því hún flutti frá Akureyri 10 ára gömul. „Ég einfald­lega elska Mosó. Þetta átti að vera stutt stopp hjá foreldrum mínum sem leituðu að íbúð í Reykjavík en ég var fljót að finna mig í fallegu Mosfells­sveitinni og fékk að ráða. Og hér er ég enn og þau reyndar líka.“

Hvað með menntun og fyrri störf?

„Ég fór í Verzló og svo í gamla Tækni­skólann og útskrifaðist þaðan með B.sc í alþjóða­markaðs­fræði. Síðar hef ég svo lært opinbera stjórn­sýslu en ég skulda enn ritgerðina þar. Ég starfaði lengi hjá Nýsköpunar­miðstöð við að aðstoða frumkvöðla og nýsköpunar­fyrirtæki meðal annars í að leita samstarfs­möguleika og styrkja hjá Evrópu­sambandinu. Ég hef líka staðið í atvinnu­rekstri sjálf en stjórn­málin hafa átt hug minn allan í nokkuð langan tíma.“

Hef hlaupið Lauga­veg­inn, klárað Land­vætt­inn og alla tind­anna í Mosó.

Hvað með áhugmál þegar vinnunni og stjórn­málavafstri sleppir?

„Ég fæddist árið 1976 og er því með réttu miðaldra, eitthvað sem ég er enn að ná utan um en áhuga­málin eru allavega mjög miðaldra. Ég elska fjalla­hlaup og útivist og skrái mig í alls konar vitleysu og hef hlaupið Lauga­veginn, klárað Land­vættinn og alla tindanna í Mosó og er því stoltur tinda­höfðingi. Núna leita ég að næstu áskorun.“

Verzló, gamli Tækni­skólinn og opinber stjórn­sýsla. Og alþingis­maður í dag. Hverjir voru draumarnir áður fyrr?

„Ég hefði aldrei spáð því að ég myndi starfa á vettvangi stjórn­mála; ég sá frekar fyrir mér að vera í atvinnu­lífinu og helst í eigin atvinnu­rekstri en vonum að ég eigi eftir að láta þá drauma líka rætast. Ég hef lengi sagst vilja verða prestur þegar ég verð stór. Annar afi minn, Rúnar Guðbjartsson, er mér mikil fyrirmynd en hann var flug­stjóri sem á seinni árum fór svo að læra sálfræði og endaði starfs­ferilinn sem sálfræðingur. Hver veit nema draumar mínir um að verða prestur á Snæfellsnesi verði að veruleika einn daginn.“

Dansað við afa á 85 ára afmæli hans.

Njóta lífsins

Hvaða lífs­reynsla hefur mótað alþingis­manninn?

„Ég held að lífs­reynsla mín á unglings­árunum þegar mikið var um andlát ungs fólks í kringum mig sé líklega það sem hafi hvað mest markerað mig. Mikið var um sjálfsvíg og það er sárara en tárum tekur að einhver nákominn telji það vera best að kveðja þennan heim. Það er bitur og sár reynsla og eitthvað sem án ef hefur haft áhrif á mig og mótað mig sem persónu. Mér er umhugað um fólkið í kringum mig og vil leggja mitt af mörkum til að fólkinu mínu líði vel og vera aðili sem hægt er að leita til ef eitthvað bjátar á. Stundum tekst það vel en örugglega ekki alltaf.

Annars held ég að mikil­vægast lexían sé að njóta lífsins þegar hægt er því það eina sem er öruggt í þessum heimi er að við munum öll deyja. Sem betur fer vitum við ekki hvenær við verðum kölluð til annarra starfa og þurfum því að standa okkur þar til að því kemur og muna að njóta á meðan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“