Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Segja Kópavogsbæ hygla fyrirtækinu Árkór: „Það er nauðsynlegt að rannsaka sölu á eignum bæjarins“

Bæjar­sjóður blæðir, fjár­festir græðir er yfir­skrift greinar þeirra Hákons Gunnars­sonar og Tryggva Felix­sonar, sem fjallar um viðskipti Kópa­vogsbæjar við fjárfesta­fyrirtækið Árkór ehf.

Þeir félagar segja að „ef viðskipti Kópa­vogsbæjar við fjárfesta­fyrirtækið Árkór ehf. eru skoðuð vakna spurningar um hverjum bæjar­yfirvöld í Kópavogi þjóna. Mánaðarlegar greiðslur úr bæjar­sjóði Kópavogs nema nú um 6,7 m.kr. til nefnds fyrir­tækis fyrir afnot hluta þess húsnæðis sem áður var í eigu bæjarbúa; húsnæði sem var selt í miklum flýti fyrir bæjar­stjórnar­kosningarnar vorið 2018. Þá nemur afsláttur sem bæjar­félagið veitir sama fyrirtæki á fasteigna­gjöldum á húseigninni Fannborg 2, gamla félags­heimilinu okkar Kópa­vogsbúa, um 6 m.kr. á ári.

Árlega gerir þetta tæplega 90 milljóna króna milli­færslu á fjármunum úr sameiginlegum sjóði bæjarbúa yfir til fyrir­tækisins Árkórs ehf. fyrir afnot af húsnæði sem áður var í eigu bæjar­félagsins.“

Að auki benda þeir Hákon og Tryggvi á að „þetta sama fyrirtæki (stofnað í mars 2018 og er án reynslu í bygginga- eða fasteigna­viðskiptum) hefur fengið nokkuð frjálsar hendur um gerð deili­skipulags á svæðinu sem fasteignirnar sem félagið keypti af bænum eru stað­settar á. Það deili­skipulag hefur verið tilefni víðtækrar og alvarlegrar deilu og valdið miklum sársauka og angist íbúa á svæðinu.

Það er því eðlilegt að spurt sé: hverjum þjóna bæjar­yfirvöld í Kópavogi? Íbúum eða fjár­festum sem vilja ávaxta sitt pund með fasteigna­viðskiptum í hjarta bæjar­félagsins?“

Einnig færa þeir í tal að „um leið og Kópa­vogsbær gerði samninginn við Árkór ehf. 10 mínútum fyrir kosningar í maí 2018 samdi bærinn um leigu á Fannborg 6 (óbreytt starfsemi!) á 3 milljónir á mánuði í 5 ár. Sú upphæð var verð­tryggð og nemur nú 3,7 milljónum og fer hækkandi í verðbólgu.

Árkór reiddi fram 303 milljónir fyrir eignina og hefur fram til þessa fengið 200 milljónir króna úr bæjar­sjóði sem leigu­greiðslu. Með sama framhaldi tekur það Árkór ehf. 8 ár að borga eignina upp að fullu með þeim leigu­greiðslum sem koma úr bæjar­sjóðnum sem seldi fyrir­tækinu eignina, en allt viðhald á eigninni er á kostnað Kópa­vogsbæjar.“

Bæta við:

„Kunnáttu­menn um slíka samninga hafa upplýst okkur að þeir þekki engin slík fordæmi.

Hið söguríka félags­heimili Kópa­vogsbúa að Fannborg 2 var af bæjar­yfirvöldum fært á „fokheldisstig“ í júní 2019 og þar með lækkuðu útgjöld Árkórs ehf. til bæjar­sjóðs um 6 m.kr. á ári. Byggingin var þó ekki í verra ástandi en svo að útleiga eignarinnar hélt áfram.

Núverandi leigjandi er sá sami Kópa­vogsbær sem taldi húsnæðið vera á „fokheldisstigi“. Húsnæðið var leigt af Kópa­vogsbæ fyrir kennslu (Kárs­nesskóli og Kópa­vogsskóli) en er nú nýtt sem athvarf fyrir fötluð börn. Úr bæjar­sjóði eru mánaðar­lega yfir­færðar um 3 milljónir króna til Árkórs ehf. fyrir að nýta hið fokhelda „félags­heimili“. Þá eru ótaldar leigu­tekjur Árkórs af samningum við aðra eins og verkfræði­stofu sem þarna var og kvittaði upp á gögn varðandi sama deili­skipulag og Árkór hafði verið afhent samhliða sölu eignanna.“

Einnig:

„Þá má geta þess að hluti sjónvarpsþáttaraðarinnar „Verbúðin“ var tekinn upp í þessu húsnæði og Árkór hafði væntanlega af því tekjur líka. Fjöl­miðlar hafa gert raunum íbúa í Fannborg 4 nokkur skil. Þar var opnað áfanga­heimili fyrir fólk í vímuefna­vanda án þess að húsnæðið stæðist kröfur um eldvarnir. Bæjar­yfirvöld fóru ekki að ráðum starfs­manna um grenndar­kynningu áður en heimild til starfseminnar var veitt. Ekki liggur fyrir hve miklar leigu­tekjur Árkór hlaut fyrir þá nýtingu hússins. Hitt er víst að aðkoma bæjar­yfirvalda að málinu var þeim ekki til sóma og olli ómældum áhyggjum hjá íbúum.“

Að lokum benda þeir Hákon og Tryggvi á að „meirihluti bæjar­stjórnar hefur eftir bæjar­stjórnar­kosningarnar sl. vor að stórum hluta verið skipaður nýju fólki. Nýir vendir sópa best, segir máltækið. Það er nauðsynlegt að rannsaka sölu á eignum bæjarins að Fannborg 2, 4 og 6 og hvernig bæjar­félagið hefur staðið að samningum við Árkór ehf. Örugglega má af því draga dýran lærdóm. Hugsanlega leiðir sú rannsókn til þess að sækja má bætur til þeirra sem bera ábyrgð á því hve illa hefur verið farið með fé í sameiginlegum sjóði bæjarbúa í framan­greindum viðskiptum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“