Á dögunum 8. til 9. febrúar árið 1959 gerðist eitt hörmulegasta sjóslys í útgerðarsögu Íslendinga, en þá fórst togarinn Júlí, frá Hafnarfirði, á Nýfundalandsmiðum og með honum þrjátíu menn í miklu ísingarveðri. Ekki mátti miklu muna að slysin yrðu fleiri því öðrum íslenskum togurum var mikil hætta búin í þessu veðri. Þorkell Máni úr Reykjavík var nærri því sokkinn og að minnsta kosti fjögur önnur íslensk skip lentu í vandræðum; Júní, einnig frá Hafnarfirði, sem og Bjarni riddari. Líka Mars úr Reykjavík og Norðlendingur frá Ólafsfirði.

Allir voru þetta síðutogarar; kallaðir Nýsköpunartogarar, sem keyptir voru til landsins að lokinni síðari heimstyrjöldinni.
Í febrúar árið 1959 voru þessi skip stödd í mjög köldum sjó; yfirborshitinn um eða undir frostmarki og á sama tíma er einnig loftkuldi og særok; fá á sig ísingu á yfirbyggingu skipsins. Hleðsla ísingar dregur snögglega úr stöðugleika og sjóhæfni.
Nýsköpunartogararnir voru afar fengsæl fiskiskip en þóttu ekki sérlega vel hannaðir og útfærðir með tilliti til ísingarhættu; á þeim voru rekkverk, vírar og fleira sem á hlóðst ís í vondum vetrarveðrum.
Í frétt Morgunblaðsins 18. febrúar segir svo:
Í gær tilkynnti Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, að togarinn Júlí væri talinn af með allri áhöfn, 30 mönnum. Leit er nú hætt að togaranum, en hún hófst að morgni 10. þessa mánaðar og í tilkynningu Bæjarútgerðarinnar segir, að viðstöðulaust hafi síðan verið leitað með flugvélum og skipum á meir en 70,000 fersjómílna svæði. Fjöldi flugvéla hafði tekið þátt í leitinni að Júlí, björgunarflugvélar frá Kanada, Bandaríkjunum, Nýfundnalandi og héðan frá íslandi, svo og bandarískar flotaflugvélar. Á sjó leituðu veðurskip og stórir rússneskir verksmiðjutogarar. Auk hins fyrrgreinda leitarsvæðis á Nýfundnalandsmiðum var og leitað á stóru aðliggjandi svæði sunnar. Allur þorri skipsmanna á Júlí voru ungir menn, yngsti maðurinn aðeins 16 ára, en hinn elzti 48 ára. Flestir á aldrinum milli tvítugs og þrítugs. Af þeim voru nítján frá Reykjavík og fimm frá Hafnarfirði. Í hópnum voru 12 heimilisfeður, er láta eftir sig konur og börn. Með hvarfi togarans Júlí hafa 39 börn á aldrinum nokkra vikna til 15 ára misst feður sína. Þetta er eitt hið mesta sjóslys, sem orðið hefur á íslenzku skipi á þessari öld, en fleiri fórust þó í hinu svonefnda Þormóðsslysi 1943, er 31 maður drukknað í Halaveðrinu 1925, er tveir togarar fórust, drukknuðu 68 menn, og með togaranum Hiium Max Pemberton, er hvarf árið 1944, fórust 29 menn.

Öll áhöfn Júlí hvarf í kalt hafið sem skilar engu til baka sem það nær tökum á, en sem betur fer, þótt þessi atburður hafi verið hryllilegur í alla staði, fórust ekki fleiri, en eins og áður sagði munaði litlu að svo færist – sérstaklega hjá togaranum Þorkatli Mána; en allt fór betur en á horfði.
Eftirlifendur áhafnar Þorkatlar Mána komu saman á sínum tíma til að rifja upp þennan erfiða atburð og annað markvert af skipinu. Morgunblaðið ræddi við Skúla Ólafsson, sem var einungis átján ára háseti í sjóferðinni örlagaríku. Hann segir svo frá að það hafi verið mögnuð stund þegar Þorkell Máni kom í land eftir þessa hættuför, en þá var enn ís á bátþilfarinu.

„Við komum um klukkan hálfþrjú um nóttina og bryggjan var full af fólki. Og það ríkti dauðaþögn á bryggjunni og þetta var ótrúleg stemming. Það var ekki að undra því að togarinn Júlí hafði farist með allri áhöfn og þá fórust fleiri togarar, en ekki íslenskir á sömu slóðum.“
Febrúar árið 1959 var mikill sjóslysamánuður og sjaldan hafa farist eins margir Íslendingar í einum mánuði og þá; mögulega fleiri en í þeim hræðilega mánuði október árið 1995 þar sem snjóflóðin féllu á Flateyri og mörg slys urðu líka víða á landinu með miklum kostnaði mannslífa.

Árið 1959 í febrúar voru samgöngutruflanir miklar og rafmagnsbilanir tíðar; stormdagar voru margir. Vitaskipið Hermóður fórst undan Höfnum á Reykjanesi 18. febrúar í stormi og stórsjó og með honum öll áhöfn eða átján manns.
Þarna sem togararnir áðurnefndu voru var algjört manndrápsveður og veðurhæðin nokkru meiri á miðunum, en frostið kannski ekki jafnhart. Erfitt er að ímynda sér erfiðari aðstæður og meiri ísingarhættu en þarna í þessu hryllilega veðri sem tók líf þrjátíu Íslendinga, flestir voru frá Reykjavík og margir af þeim ungir menn. Sá yngsti aðeins sextán ára gamall.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir