Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Miðaldra karl í Breiðholti fékk pylsu í baðkerið: „Svo létti mér þegar ég sá að þetta var pylsa“

Gula pressan var partur af Pressunni sálugu en var henni ætlað að vega upp á móti alvarlegum fréttum í blaðinu, með grín­fréttum. Gunnar Smári Egilsson var ritstjóri Pressunnar þegar Gula pressan leit dagsins ljós en hún sló heldur betur í gegn.

Ýmsar misgáfulegar „fréttir“ birtust í Gulu pressunni en eins sú fyndnasta er eftir­farandi frétt sem birtist 28. maí 1992:

Miðaldra karl í Breið­holti FÉKK PYLSU í BAÐKERIÐ

„Grímur Pálsson“

Reykjavík, 28. maí. „Ég var kominn ofan í baðið þegar ég tók eftir pylsunni. Í fyrstu brá mér rosalega því ég vissi ekkert hvað þetta var. Hélt jafnvel að þetta hefði komið út úr mér einhvern veginn. Svo létti mér þegar ég sá að þetta var pylsa, en þá brá mér aftur því ég skildi ekkert hvað hún var að gera þarna,“ sagði Grímur Pálsson, miðaldra karlmaður sem varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að fá pylsu í baðkerið sitt. Samkvæmt upplýsingum frá Hitaveitu Reykja­víkur mun pylsan hafa verið dálítinn tíma í heita­vatnsæðinni. Þegar vatnið var sett á leið­slumar frá Nesja­völlum gleymdist að tæma kaffi­aðstöðu þeirra sem lögðu þær, en þeir höfðu komið sér fyrir slíkri aðstöðu í einni dælu­stöðinni. I frétt sem Hita­veitan hefur sent frá sér segir að meðal annars séu kaffi­brúsar, sykurkar, þrír lítrar af mjólk og ýmislegt annað sem tilheyrir kaffistofu­haldi í pípunum. Einnig segir í tilkynningunni: „Þá hefur glatast forláta kaffi­kanna sem á er skrifað „Elsku pabbi“ og er finnandi vinsamlegast beðinn að koma henni til skila til Kára Davíðs­sonar, Furugrund 15.“

Hér er svo annað gott dæmi um húmorinn sem einkenndi Gulu pressuna en hér er sagt frá því er Jesús Kristur Jósepsson Guðsson birtist í skýja­bólstrum yfir Bolungarvík árið 1993.

Kristur birtist yfir Bolungarvík

Sérfræðingar Í trúar­brögðum kalla þetta krafta­verk

Bolungarvík, ll.mars. „Auðvitað vildi ég geta tekið mark á þessu. En við í bæjar­stjórninni höfum brennt okkur á því að uppveðrast yfir smæstu vonar­glætum,“ sagði Ólafur Kristjánsson, bæjar­stjóri í Bolungarvík, þegar GULA PRESSAN sýndi honum mynd sem áhuga­ljósmyndari tók af skýja­bólstrum fyrir ofan Bolungarvík. í þeim má sjá ásjónu Jesú Krists og er eins og hann sé að blessa bæinn og hughreysta fólkið. „í sjálfu sér er það ákveðin huggun að málflutningur okkar skuli fá hljóm­grunn á æðstu stöðum. Við vorum orðin hálf vondauf af því að tala fyrir daufum eyrum ríkis­stjórnarinnar,“ bætti Ólafur við. Þeir sérfræðingar í trúmálum og dulhyggju sem GULA PRESSAN ræddi við voru á einu máli um að hér væri krafta­verk á ferð. „Þetta eru skýr skilaboð frá almættinu,“ sagði Gunnar Þorsteinsson í Krossinum. „Það stendur með Bolvíkingum í þrengingum þeirra og vill leiða þá út úr vandanum.“ „Ég veit ekki hvernig ég á að túlka þetta,“ sagði Sverrir Hermannsson, banka­stjóri Lands­bankans, þegar GULA PRESSAN bar þetta undir hann, en Lands­bankinn er einn stærsti kröfu­hafinn í þrotabú EG. „Eftir að hafa skoðað bækur fyrir­tækja Einars Guðfinns­sonar finnst mér þetta fullseint í rassinn gripið. Forráða­mönnum þessara fyrir­tækja hefði ekki veitt af einhvers konar leiðsögn fyrr.“

Mynda­texti Gulu pressunnar: Ef myndin prent­ast vel má glögg­lega sjá hvernig and­lit Krists birt­ist í skýja­bólstr­unum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim