Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sonja er enn með innilokunarkennd eftir vistina á Upptökuheimilinu: „Ég fæ ennþá martraðir“

Mynd úr myndabanka
Mynd úr mynda­banka Mynd: Shutterstock

Sonja Ingva­dóttir var ein þeirra stúlkna sem vistaðar voru á stúlkna­heimilinu Bjargi á árunum 1965 til 1967. Hún var 14 ára gömul þegar hún var send á heimilið og er ein þeirra stúlkna sem hefur sakað forsvars­menn og starfs­konur heimilisins um harðræði og ofbeldi.

Sonja var ein þeirra sem stóð að kæru á hendur Bjargi árið 1967. Á endanum var málið láta niður falla því ekki þóttu nægar sannanir fyrir hendi til þess að höfða opinbert mál. Bjarg varð seinna eitt þeirra vist­heimila sem ríkið greiddi sanngirnis­bætur vegna og þótti sennilegt að stúlkurnar sem þar voru vistaðar hefðu þurft að þola óforsvaranlega meðferð þeirra sem þar stjórnuðu og störfuðu.

Sonja og fleiri konur sem dvöldu á Bjargi hafa borið séra Auði Eiri Vilhjálms­dóttur þungum sökum, en hún átti frumkvæði að opnun Bjargs og starfaði þar þann tíma sem heimilið var opið. Hún er meðal annars sökuð um andlegt ofbeldi og að hafa vitað upp á hár hvers konar meðferð viðgekkst á Bjargi. Hún er sömuleiðis sögð hafa fyrir­skipað einangrun og harkalega meðferð stúlknanna á Upptöku­heimilinu í Kópavogi, þar sem þær hafi verið vistaðar fyrir veru sína á Bjargi og sendar á ef þær óhlýðnuðust.

Sonja segir sögu sína í fyrsta sinn opinber­lega í ítarlegu viðtali í nýjasta tímariti Mannlífs.

Sótt í lögreglubíl

Sonja bjó hjá móður sinni og stjúpföður áður en hún var send á Bjarg.

„Ég reifst við móður mína og stjúpi minn vildi ekki hafa mig, hann vildi losna við mig. Elsta dóttir konunnar sem fæddi mig var farin að heiman og ég var eftir. Hann var búinn að eignast tvö börn með móður minni.

Ég var fjórtán ára – sýndu mér þann fjórtán ára einstakling sem ekki rífst við foreldra sína eða er ósammála þeim. Þetta er svona þegar maður byrjar að fara inn í fullorðins­heiminn, með því að rífa sig frá foreldrum sínum – vera ósammála.“

Sonja segist hafa verið í mat heima hjá vinkonu sinni þegar lögreglu­bíll kom þar að og henni var gert að fara með lögreglu­þjónunum. Leiðin lá á Upptöku­heimilið í Kópavogi.

„Ég fæ ennþá martraðir – 57 árum síðar. Ég var keyrð á heimilið í Kópavogi og lokuð inni í tólf fermetra, grænu herbergi, með járnrúmi. Það var enginn gluggi – ég sá ekki sólina. Það voru tveir ljótir, stórir lögreglu­þjónar þarna og læknir sem átti að rannsaka mig.“ Sonja útskýrir að þarna hafi átt að skoða kynfæra­svæði hennar.

„Ég neitaði því og þá spurði hún hvort hún ætti að láta löggurnar klæða mig úr. Það vildi ég ekki. Svo hún rann­sakaði mig og sagði að þarna væri ekkert að sjá – enda hafði ég aldrei verið við karlmann kennd. Ég var lokuð þarna inni í eina viku.“ Hún segist á endanum hafa verið orðin svo illa haldin að hún fékk blóðnasir og féll í yfirlið.

„Ég fæ ennþá martraðir – 57 árum síðar“

Sonja segir eina konu sem starfaði á Upptöku­heimilinu hafa reynt að hjálpa henni. „Hún leyfði mér að fara í bað og á baðherberginu var gluggi, sem ég reyndi að kíkja út um, til þess að sjá himininn.“

Sonja þarf að hætta frásögninni stutta stund.

„Ég er með innilokunar­kennd eftir þetta. Ég get ekki verið í herbergi án glugga.“

Bjarg

Send á Bjarg

Sonja segir konuna á Upptöku­heimilinu, sem reyndi að hjálpa henni, hafa rætt við séra Auði Eiri Vilhjálms­dóttur, sem kom að opnun stúlkna­heimilisins Bjargs, átti raunar frumkvæði að því, og vann þar á meðan heimilið var starfrækt. Séra Auður Eir var lögreglu­kona á þessum tíma. Konan hafi sagt Auði Eiri að ekki gengi að hafa Sonju á Upptöku­heimilinu lengur, þar sem henni liði afar illa.

„Eftir það var ég send á Bjarg. Þetta var viku áður en heimilið var opnað. Þau héldu mér þar í viku án þess að segja frá því. Þegar þau sögðu mér að ég ætti að fara á Bjarg sagði Auður Eir mér að ég ætti ekkert að vera að hugsa um móður mína, því hún væri búin að segja að henni þætti ekkert vænt um mig lengur og væri farin til Spánar.

Svona er þegar verið er að heilaþvo börn. „Foreldrar þínir elska þig ekki lengur.“

Ég man alveg að þegar hún var að segja þetta við mig stóð lögreglu­kona hjá og horfði forviða á hana.

Ég held að stjúpi minn, sem ég vil samt ekki kalla það – maðurinn sem giftist móður minni – hafi farið til Auðar Eirar og beðið um að þær tækju við mér. Því hann vildi fara til Spánar með fjöl­skyldu sína og losna við mig.“

Viðtalið við Sonju má lesa í heild sinni í nýjasta tímariti Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram