Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Einar Ágúst tileinkar móður sinni og barnsmæðrum nýtt lag sem kemur út á morgun

Einar Ágúst Víðisson Mynd / Hallur Karlsson
Einar Ágúst Víðisson Mynd / Hallur Karlsson

Það er hellingur í gangi hjá hinum þekkta tónlistar­manni Einari Ágústi Víðissyni, og nú er kappinn að gefa út nýtt lag, sem kemur út á morgun:

„Já, ég er að gefa út nýtt lag á afmælis­degi frum­burðar míns.“

Lagið sem Einar Ágúst er að senda frá sér heitir „Þakka þér“ og er „lag til móður minnar og barns­mæðra.“

Hann segir einnig að „lagið mætti svo tileinka öllum konum sem eru að stíga inn í ljósið og nýja tíma úr alda­gamalli heimsmynd eitraðrar karl­mennsku.“

Lagið samdi danskur laga­höfundur að nafni John Gordon, sem samdi með Einari Ágústi  lagið „Hvað er að lokum?“ sem Stefán Hilmarsson söng með honum árið 2007.

Einar Ágúst segir að „John samdi einnig sigurlag Þjóðverja í Eurovision árið 2010, sem Lena söng, Satellite, svo eitthvað sé nefnt, en hann er laga­höfundur að atvinnu.“

Hann segir lagið vera „hugljúft popp með smá soul fíling.“

Og það er einvalalið sem kemur að gerð lagsins frá til ö. Einar Ágúst samdi sjálfur textann, en um trommu­leik sá Gunnar Leó Pálsson, Helgi Reynir Jónsson spilar á píanó, hljómborð, orgel og gítar. Sá sem plokkar bassann er Baldur Kristjánsson, en um upptökur, gítarsóló og píanó sá sjálfur Vignir Snær Vigfússon.

Lagið Þakka þér kemur út á morgun á öllum streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“