Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Morðingi Rachel Morin gæti verið raðmorðingi: „Hefur nákvæmlega enga virðingu fyrir mannslífum“

Racel Morin
Racel Morin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Maðurinn sem grunaður er um morðið á Rachel Morin hefur sýnt að hann beri „enga virðingu fyrir manns­lífum“ og gæti verið raðmorðingi, að sögn lögreglu­stjóra Maryland

Sjá einnig: Fimm barna móðir myrt á vinsælli gönguleið: „Ég elska Rachel, ég myndi aldrei gera henni neitt“

Mannlíf hefur að undan­förnu fjallað um morðið á hinni 37 ára gömlu fimm bara móðurinni Rachel Morin. Móðirin fannst nálægt vinsælli gönguleið nærri heimili sínu í Bel Air í Maryland en hún hafði farið út að hlaupa eins og hún hafði oft gert áður.

Lögreglu­stjórinn í Hartford-sýslu, Jeff Gahler sagði Fox News Digital að hann óttaðist að hinn dular­fulli maður muni gera aðra árás og viðurkenndi að sá grunaði gæti verið hvar sem er í landinu.

„Ofbeldið sem sést í máli Rachel sýnir að hann hefur nákvæmlega enga umhyggju, enga virðingu fyrir manns­lífum. Ég held að hann muni halda áfram slíku ofbeldi þar til hann næst,“ sagði Gahler. Bætti hann svo við: „Hann gæti verið raðmorðingi.“

Yfirvöld hafa leitað hins miskunnalausa morðinga frá því að lík Morin fannst sjötta ágúst síðastliðinn á Ma & Pa göngu­leiðinni í Bel Air, Maryland.

DNA-sýni sem fannst á vettvangi morðsins tengist innbroti og árás á unga stúlku í Los Angeles í mars síðastliðnum, samkvæmt lögreglunni. Myndband náðist af þeim grunaða þar sem hann yfirgefur heimili stúlkunnar en því miður sást ekki í andlit hans.

„Raðmorðingjar byrja alltaf einhvers staðar. Það sem hann gerði í Los Angeles var vissulega, að ég held, í þá átt,“ sagði Gahler á mánudaginn. „Ég held að það hafi verið ætlun hans að valda alvarlegri líkamlegum skaða.“

Þrátt fyrir DNA-sýnin hefur lögreglan ekki getað borið kennsl á þann grunaða og hefur enga hugmynd um það hver hann gæti verið.

„Hann gæti enn verið að fela sig í sýslunni okkar, en hann gæti líka hafa flúið hvert sem er í landinu, jafnvel hvert á land sem er.“

Lögreglan birti myndband af honum eins og áður segir en lögreglan segir manninn vera af rómönsku bergi brotinn, um 175 cm. á hæð og um 75 kíló.

„Þessi manneskja ber enga virðingu fyrir manns­lífum og þar til hann verður handsamaður, er hætta á að hann harmi aðra manneskju,“ sagði Gahler við Fox News í síðustu viku.

Fréttin er unnin upp úr frétt The New York Post.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár