Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Ég fæ mig ekki til að tigna hómófóbískan Guð“

Séra Sigurvin Lárus Jónsson er prestur við Fríkirkjuna í Reykjavík, og hann ritar pistil sem ber yfir­skriftina: Jafnrétti til að elska.

„Í baráttu­sálmi Desmond Tutu segir: „Gæskan er öflugri en illskan, ástin gegn hatrinu fer, ljós­geislinn lýsir upp myrkrið, lífið af dauðanum ber. Sigurinn fæst, því ást Guðs er næst.“

Kristin kirkja í heiminum er marg­breytileg og fjöl­breytt. Þessi fjöl­breytileiki kristinnar kirkju er í senn styrkur hennar og veikleiki. Fjöl­breytileiki kirkjunnar verður til þess að fleiri geta fundið sér stað í samfélagi lærisveina Jesú og veikleiki hennar er sá að afstaða kirkna til trúarlegra og siðferðilegra mála getur tekið á sig myndir öfganna á milli.“

Hann bendir á að „afstaða kristinnar kirkju til hinsegin fólks er jafnframt fjöl­breytt en hluti kristinna kirkju­deilda álíta samkyn­hneigð synd. Sú afstaða er í flestum tilfellum sett fram með þeim rökum að Biblían fordæmi samkyn­hneigð og að Guð elski syndarann, í þessu tilfelli hinsegin fólk, en fordæmi eða hati syndina, sem eru hinsegin ástir. Þeir textar Biblíunnar sem notaðir eru til að fordæma samkyn­hneigð eru annarsvegar úr Mósebókum Gamla testamentisins og hinsvegar úr bréfum Páls postula.“

Heldur áfram:

„Þá texta Gamla testmentisins sem notaðir eru til að réttlæta andúð á samkyn­hneigð er að finna í laga­bálkum gyðingdóms en mörg þeirra laga eru okkur fullkomlega framandi og hafa aldrei verið haldin í heiðri í kristinni hefð. Það vægi sem að þessir textar Mósebóka hafa fengið til að fordæma hinsegin fólk er nýtilkomið og sprettur af þörfinni til að upphefja gagn­kynhneigðar­hyggju á kostnað þeirra sem ekki passa inn í mótið. Páls­bréfin standa okkur nær en afstaða Páls til samkyn­hneigðar í Rómverja­bréfi og Fyrra Korintubréfi er langt frá því augljós. Páll fordæmir kynhegðun grísk-rómverskrar menningar, meðal annars drengjaást (pederastíu) og vændi karla, en gerir ekki ráð fyrir að um jafningja ástar­samband tveggja einstaklinga af sama kyni geti verið að ræða.“

Séra Sigurvin segir að „það er sannfæring mín að sá boðskapur kristinna manna í samtímanum að samkyn­hneigð sé synd, sé vald­beiting og mann­réttinda­brot. Sú afstaða réttlætir og veldur gríðarlegri þjáningu í heiminum og kyndir undir ofsóknir og ofbeldi á hendur hinsegin fólki. Í ljósi sögunnar mun hún flokkast með stuðningi kirkna við þrælahald, kynþátta-aðgreiningu (apartheid) og kven­fyrirlitningu.“

Hann segir að íslenskt samfélag megi vera stolt af því að hafa horfst í augu við ofbeldis­fulla fordóma sína á þeim 44 árum sem liðið hafa frá stofnun Samtak­anna 78:

„Í dag tekur þriðjungur þjóðarinnar þátt í hátíðar­höldum Hinsegin daga og það er mikill minni­hluti sem heldur uppi eða styður fordóma í þeirra garð. Sá minni­hluti talar því miður oft í nafni Jesú Krists og réttlætir sig á grund­velli þeirrar guðfræði að Guð elski syndarann en hati syndina. Sú elska sem byggir á því að þú sem einstaklingur afneitir sjálfum þér og gerir lítið úr ást þinni til annara, er ekki elska heldur vald­beiting.“

Séra Sigurvin er á því að „ást sem byggir á jafningja­tengslum er guðleg og heilög, í hvaða mynd sem hún birtist, en vald­beiting og ofbeldi getur aldrei byggt á jafningja­tengslum. Þess vegna getur kristin kirkja samtímis fagnað hinsegin fólki og ástum þeirra en fordæmt ofbeldi. Það er ekki synd að elska en það er synd að fordæma ást annarra og slík fordæming veldur og réttlætir ofbeldi gegn hinsegin fólki.

Í Jóhannesar­bréfi er því haldið fram að boðorð kærleikans sé öllum boðorðum æðri og að sá sem þykist tala af kærleika en hefur hatur í huga geti ekki staðið í ljósinu. Þar segir: „Sá sem segist vera í ljósinu og hatar bróður sinn, hann er ennþá í myrkrinu. Sá sem elskar bróður sinn býr í ljósinu og í honum er ekkert er leitt geti hann til falls.”

Þegar kemur að grund­vallar mann­réttindum má engar mála­miðlanir gera og afstaða kirkjunnar í heiminum til samkyn­hneigðar er ein af stóru syndum hennar í samtímanum.“

Og svo lokaorðin:

„Að lokum vil ég halda á lofti orðum Desmond Tutu, aldraða erki­biskupsins í Suður-Afríku, en hann var einn verndara alþjóð­legs átaks sem að Mann­réttinda­skrifstofa Sameinuðu Þjóðanna hefur sett á laggirnar undir yfir­skriftinni Free & Equal, eða Frjáls og jöfn. Átakinu er ætlað að berjast gegn fordómum og laga­setningum sem mismuna hinsegin fólki um allan heim. Á stofn­fundinum líkti hann afstöðu kristinna til samkyn­hneigðar við þá sem á sínum tíma vörðu aðskilnaðar­stefnu svartra í Suður-Afríku og um þá guðfræði segir hann:

„Ég fæ mig ekki til að tigna hómófóbískan Guð og ef mér yrði boðin vist á hómófóbískum himnum myndi ég afþakka.““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim