Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Páll Magnússon bendir á Íslandsmet í aukningu ríkisútgjalda: „Yfirgengilegt bruðl“

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

Páll Magnússon fyrrum alþingis­maður bendir á gríðar­lega aukningu á ríkis­útgjöldum á milli ára, í síðustu færslu sinni á samfélags­miðlinum Facebook. Hann bendir á að að ríkið sé fyrir­ferðamesta stofnuninni þegar kemur að manna­ráðningum: „Á heilsíðu eftir heilsíðu er ríkið að falast eftir fólki til starfa. Er maður að koma í manns stað? Eru svona margir að hætta? Nei, sannarlega ekki. Bara í fyrra, 2021, fjölgaði ríkis­starfs­mönnum um 1,330; mesta fjölgun á einu ári síðan Byggða­stofnun fór að taka saman yfirlit um þetta. Þessi fjölgun ríkis­starfsmanna á einu ári slagar upp í heildar­fjölda starfs­manna allra álveranna á Íslandi!“

Þá bendir hann jafnframt á kaup ríksins á nýju ráðuneytis­húsnæði á Hafnar­bakkanum: „Ofan á þessar megin­línur bætast öskrandi dæmi um yfirgengilegt bruðl eins og að kaupa skrif­stofur fyrir eitt ráðuneyti á 6000 milljónir króna – í dýrasta skrifstofu­húsnæði á Íslandi á dýrustu lóð á Íslandi. Fyrir ráðuneyti sem þyrfti ekki einu sinni að vera í Reykjavík. Að öllu saman­lögðu virðist sem allar hömlur séu brostnar varðandi aukningu ríkis­útgjalda; ríkis­lestin er bremsu­laus.“

Í viðtali í morgun­útvarpi Bylgjunnar bendir Páll jafnframt á að það skjóti skökku við að Seðla­banki og ríki gagnrýni svokallaðar „Táslu­myndir frá Tenerife“ á meðan lítið sem ekkert aðhald sé viðhaft hjá stofnunum Ríksins.

Hér að neðan má sjá færslu Páls Magnússonar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Vildi hitta nýja kærastann og beitti fyrrverandi ofbeldi
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti