Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Vilhjálmi er nóg boðið: „Seðlabankanum mun á endanum takast að rústa íslenskum heimilum“

Vilhjálmur Birgisson.
Vil­hjálmur Birg­is­son.

Verkalýðs­forkólfurinn Vilhjálmur Birgisson er æfur yfir vaxta­hækkun Seðla­bankans og tjáir sig um málið.

„Eftir þessa stýra­vaxtahækkun upp á 1% þá er orðið hvell­skýrt að allar forsendur kjara­samninga eru kolbrostnar enda var það mat samnings­aðila að kjara­samningarnir væru að stuðla að lækkun vaxta. En rétt er að geta þess að frá því gengið var frá kjara­samningum 3. desember 2022 hafa vextir Seðla­bankans hækkað um 1,75% og standa nú í 7,5% Það er orðið ljóst að Seðla­bankanum mun á endanum takast að rústa íslenskum heimilum og þurrka upp alla aukningu á ráðstöfunar­tekjum heimil­anna sem náðst hefur í kjara­samningum liðinna ára með þessari eyði­leggingar-herferðar stefnu sinni.“

Bætir við:

„Við skulum hafa það hugfast að þessar vaxta­hækkanir virka ekkert öðruvísi en skýstrókur sem sogar burt allt ráðstöfunarfé heimil­anna og færir til fjármagns­eigenda og banka­stofnanna. Þannig virka vaxta­hækkanir, færa fé frá skuld­settum heimilum yfir til fjármála­kerfisins. Þau heimili sem eru með breyti­lega húsnæðis­vexti hafa strax fundið fyrir þessum vaxta­hækkunum á liðnum misserum og nemur sú hækkun á vaxta­byrði tugum þúsunda ef ekki vel á annað hundrað þúsund á mánuði. Við skulum heldur ekki gleyma þeirri snjó­hengju sem mun skella á þeim heimilum á næstu mánuðum sem eru með fasta vexti en þessi lána­stabbi nemur um 630 milljörðum. En vaxta­endurskoðun mun koma til framkvæmda af fullum þunga á þessu ári og því næsta þar sem vaxta­byrði mun aukast gríðar­lega með skelfi­legum afleiðingum fyrir heimili þessa lands.“

Vilhjálmur ljŕ máls á því að „við þessar vaxta­hækkanir kemur í ljós svo ekki verður um villst hin ofboðs­lega skaðsemi verð­tryggingar enda munu viðskipta­bankarnir vísa öllum lántökum sem ekki geta staðið skil á óverðtryggðum lána­kjörum yfir í verð­tryggð húsnæðislán. Með öðrum orðum Seðla­bankinn myndi ekki geta hækkað stýri­vextina svona mikið nema vegna þess að verð­tryggð lán eru í boði.

Málið er að greiðslu­geta og greiðsluþol heimil­anna er takmörkunum háð og þeir myndu aldrei hækka vextina svona mikið nema vegna þess að þeir vita að banka­kerfið mun vísa öllum sem ekki geta greitt af óverðtryggðum lánum yfir í verð­tryggð lán. Það er reyndar grát­broslegt í ljósi þess að þetta er 12. stýri­vaxtahækkun Seðla­bankans að hlusta á rökstuðning bankans fyrir þessum miklu hækkunum en hann er síbreytilegur og heldur oft á tíðum ekki vatni.“

Vilhjálmur nefnir að „hinsvegar er aðalmálið eins og hefur komið fram hjá Seðla­bankanum að það sé „ekki hægt“ að vera með neikvæða raunvexti. Á mannamáli þýðir það að enn og aftur slær Seðla­bankinn skjald­borg utan um fjármagns­eigendur og fjármála­öflin á kostnað almennings. Það er sorgleg staðreynd enda hefur sagan í fortíð og nútíð sýnt okkur að Seðla­bankinn og stjórn­völd eru ætíð tilbúin að slá skjald­borg utan um fjármála­kerfið á kostnað almennings.“

Segir að endingu:

„Það er ekki bara að greiðslu­byrði húsnæðis­lána sé að hækka gríðar­lega heldur hefur allt annað hækkað mikið á liðnum misserum. Matvara, tryggingar, dagvistunar­gjöld, bifreiða­gjöld, fasteigna­skattar og svona mætti lengi telja.

Það er sorglegt að sjá hvernig Seðla­bankinn slátrar þeim ávinningi sem við töldum okkar vera að ná í síðasta kjara­samningi og því er það mitt persónu­lega mat að verkalýðs­hreyfingin eigi að slíta öllum viðræðum við Samtök atvinnu­lífsins sem eru komnar af stað enda tilgangs­laust að vinna að langtíma­samningi á sama tíma og allir varpa kostnaðar­hækkunum á herðar launa­fólks, neytenda og heimila. Nú er nóg orðið nóg í mínum huga!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim