Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hefur fengið sig fullsadda af English pub: „Þau draga úr vægi íslenskunnar á mjög lúmskan hátt“

Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir, þjóð­fræðingur, rithöfundur og fyrr­verandi alþingis­maður, segist ósammála því að íslensk­unni stafi engin ógn af enskum nöfnum á veitinga­stöðum og krám. Eitt besta dæmið um það er knæpan English pub. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, hélt öðru fram í kvöld­fréttum RÚV.

Ólína skrifar á Facebook: „Ég verð að andæfa því sjónar­miði sem Eiríkur Rögnvaldsson setti fram í sjónvarps­fréttum í kvöld, að íslensk­unni stafi ekki ógn af erlendum heitum á veitinga­stöðum og krám, heldur séu það matseðlarnir sem séu áhyggju­efnið. Um það síðarnefnda geri ég engan ágreining – það er alvarlegt þegar ekki er lengur hægt að lesa matseðil á íslensku á veitinga­húsum. En  mér fannst full lítið gert úr hinu, sem ég tel ekki síður fela í sér ógn, og það er sú árátta að klína enskum heitum og slagorðum á alla skapaða hluti.“

Hún segir þetta bæði sjón­mengun og raunar áreiti. „Heiti fyrir­tækja, sem og slagorð þeirra, eru sýnileg hvarvetna og þau hafa áhrif, bæði bein og óbein, á hvern þann sem sér þau. Þau eru málfarsleg sjón­mengun – málfarslegt áreiti liggur mér við að segja – og þau draga úr vægi íslensk­unnar á mjög lúmskan og óbeinan hátt. Þetta er alvarleg þróun og fái hún að halda áfram óáreitt þá mun hún aðeins leiða til útrýmingar íslensk­unnar, sem nú þegar er í mikilli hættu. Sú full­yrðing er ekki upphrópun heldur staðreynd og við þeirri staðreynd verður að bregðast fyrr heldur en seinna ef við ætlum að eiga áfram móðurmál, Íslendingar,“ segir Ólína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum