Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Landsfundi ungliðahreyfingar Viðreisnar lauk í gær: „Ísland er hætt að virka“

Framkvæmdastjórn Uppreisnar. Á mynd vantar Draumey Ósk.
Fram­kvæmda­stjórn Upp­reisnar. Á mynd vantar Draumey Ósk.

Lands­fundi Uppreisnar, ungliða­hreyfingar Viðreisnar, lauk í gær. Á fundinum var kosið í nýja framkvæmda­stjórn og félaga­stjórn Uppreisnar. Þá voru Uppreisnar­verðlaunin einnig veitt og Uppreisn sendir frá sér stjórnmála­ályktun um stöðu íslensks samfélags.

Fram­kvæmda­stjórn Upp­reisnar. Á mynd vantar Draumey Ósk.

Við upphaf Lands­fundar veitti félagið Uppreisnar­verðlaunin í fjórða sinn. Verð­launin eru árlega veitt sem viðurkenning á og þakklætis­vott fyrir óeigingjarnt starf í þágu frelsis, jafnréttis og opnara samfélags, en það eru grunn­gildi félagsins. Verð­launin eru veitt í tvennu lagi, annars vegar til einstaklings og hins vegar til fyrir­tækis eða félaga­samtaka.

Hand­hafar Upp­reisn­ar­verð­laun­anna.

Í flokki einstaklinga var það Þorsteinn Pálsson, fyrr­verandi forsætis­ráðherra, sem fékk verð­launin. Hlaut hann verð­launin einkum fyrir framlag sitt til alþjóða­samstarfs, frjáls­lyndis og þátt hans í því að ungt fólk hlaut sæti ofarlega í Reykja­víkur­kjördæmum í síðustu Alþingis­kosningum.

Í flokki félaga­samtaka voru það Lands­samtökin Þroska­hjálp sem fékk verð­launin fyrir herferðina sína Hvað er planið? þar sem ljósi er varpað á stöðu fatlaðra ungmenna þegar kemur að námstæki­færum að loknu námi af starfs­brautum framhalds­skólanna. Uppreisn tekur heilshugar undir þessa áskorun og mikilvægi þess að ungt fólk með fatlanir sé gefið pláss í atvinnu­lífinu og samfélaginu í heild.

Þá sendi Uppreisn frá sér stjórnmála­ályktun en þar lýsir ungliða­hreyfingin þungum áhyggju yfir stöðu íslensks samfélags. Segir í ályktuninni að grunn­stoðir samfélagsins séu að bogna undan álagi vegna kerfis sem hætt er að virka fyrir almenna borgara. Farið er yfir stöðu húsnæðis­markaðarins í ályktuninni, heilbrigðis­kerfið og vaxta­hækkana. Hér fyrir neðan má sjá ályktun Uppreisnar í heild sinni:

„Uppreisn, ungliða­hreyfing Viðreisnar, lýsir þungum áhyggjum yfir stöðu íslensks samfélags. Það er fyrir löngu orðið ljóst að grunn­stoðir samfélagsins eru að bogna undan álagi vegna kerfis sem hætt er að virka fyrir hinn almenna borgara. 

Þegar litið er til húsnæðis­markaðarins eru vextir búnir að hækka upp úr öllu valdi og eru aftur í engu samræmi við þau ríki sem við berum okkur saman við. Fasteigna­markaðurinn er hættur að virka og fólk farið að seinka flutningum úr foreldra­húsum. Uppreisn lýsir ekki bara áhyggjum yfir auknum fjölda vandræða­legs einnar nætur gamans heldur líka þeim langtíma áhrifum sem það mun hafa. Það að fólk seinki flutningum úr foreldra­húsum gerir að verkum að fólk stofnar seinna til fjöl­skyldu. Til langs tíma mun það hafa neikvæðar afleiðingar á lífeyris­sjóðs­kerfið okkar, þegar sú kynslóð sem núna á í erfið­leikum með að eignast sína fyrstu fasteign fer á eftirlaun. 

Heilbrigðis­kerfið er líka hætt að virka fyrir fólk. Enda­lausar fréttir af manneklu og lausum samningum í heilbrigðis­kerfinu sýna okkur að ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur er ekki í stakk búin til að efla heilbrigðis­kerfið. Þess í stað ákveða þau að banna bragð­bætta nikótín­púða. Nýir samningar við sérgreina­lækna, sjúkra­þjálfara og fleiri heilbrigðis­stéttir hafa enn ekki komið fram og áhuga­leysi heilbrigðis­ráðherra virðist vera algjört. Til að mynda gleymdi hann í byrjun þessa mánaðar að fram­lengja þá undanþágu sem notast hefur verið við meðan samningar eru lausir. 

Það er öllum ljóst að Ísland er hætt að virka eins og við eigum skilið að það virki. Verðbólga er í hæstu hæðum og aðallega er keyrð áfram af húsnæðis­skorti. Kaldur vetur kjara­viðræðna er framundan og ríkis­stjórnin getur ekki einu sinni komið sér saman um það hvernig skatta­umhverfi hún vill. Það er því ljóst að ríkis­stjórn þriggja íhalds­flokka, sem geta ekki komið sér saman um neitt nema hver eigi að sitja hvar við ríkis­stjórnar­borðið, er ekki starfi sínu vaxin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“