Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Bjarni sýnir fingurinn

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Bene­dikts­son.

Klofningur innan ríkis­stjórnarinnar blasir við eftir eldmessu Bjarna Benedikts­sonar, formanns Sjálfstæðis­flokksins, eftir ráðherra­skiptin á Bessa­stöðum þar sem Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra var nauðugur látinn taka pokann sinn. Bjarna var mikið niðri fyrir þegar hann sagði að samfélagið væri að sligast undan kostnaði við hælis­leitendur og það yrði að grípa til aðgerða. Með þessu sýnir hann samstarfs­fólki sínu í VG fingurinn. Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra var varkár í tilsvörum og á allt öðru máli og talaði fyrir hófsemi í málefnum hælis­leitenda.

Ágrein­ingur VG og Sjálfstæðis­flokksins hefir aldrei komið eins berlega í ljós. Fyrr­verandi dómsmála­ráðherra, tók í sama streng og formaðurinn í gær og sagði að erfitt væri fyrir  Vinstri-græna að vera í ríkis­stjórn. Þá lýsir hann því að VG hefði gengið á bak orða sinna í sambandi við útlendinga­málin og nú væri allt komið í óefni.

Vísbendingar eru uppi um að líf stjórnarinnar hangi á bláþræði og ólíklegt sé að hún lifi út kjör­tímabilið. Bjarni veit sem er að bæði flokks­brot Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar og Flokkur fólksins bíða þess eins að kallið komi og þeir verði kallaðir til samstarfs í stað VG. Útlendinga­málin verða ekki vandamál við þau skipti. Það eru spennandi tímar framundan í stjórn­málunum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Slúður