Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lyklastríð presta á Eskifirði: „Hann jarðar meira en við prestarnir“

Eskifjarðarkirkja. Mynd / East.is
Eski­fjarð­ar­kirkja. Mynd / East.is

Davíð Baldursson, fráfar­andi sóknar­prestur á Eskifirði, virðist eiga erfitt með að láta eftir brauðið til arftaka sinna. Að minnsta kosti er hann enn með lykla­völdin að presta­skrif­stofunni og hleypur enn til flestra verka sem prestur í bænum. Prestarnir sem tóku við af honum fyrir tæpu ári síðan hafa fengið nóg og kvartað til biskups.

Í október í fyrra tóku þau Benjamín Hrafn Böðvarsson og Erla Björk Jóns­dóttir við sem sóknar­prestar er Davíð lét af embætti vegna aldurs. Nýju prestunum var hins vegar tilkynnt að fráfar­andi prestur héldi prests­skrif­stofunni. Benjamín og Erla kvörtuðu yfir því við sóknar­nefndina sem lofaði að þau fengju skrif­stofuna afhenta. Úr því hefur þó ekki enn orðið þrátt fyrir að næstum ár sér liðið frá presta­skiptunum og deila sóknar­prestarnir skrif­stofu með kirkju­verði og starfs­fólki menningar­skrifstofu Fjarðar­byggðar.

Þetta er hið leið­in­leg­asta mál og stórfurðu­legt

Benjamín bendir á að tæknilega séð hafi þau aðgang að presta­skrif­stofunni en það sé alveg ljóst að hún sé ekki þeirra heldur Davíðs. Aðspurður telur hann það augljóst að sjálf prests­skrifstofan eigi að vera fyrir núverandi sóknar­presta. „Þegar við vorum sett inn í embættið fengum við að vita það að fráfar­andi sóknar­prestur yrði áfram með skrif­stofuna. Þetta er hið leiðinlegasta mál og stór­furðulegt. Á skrif­stofunni er skrúðinn og flest vinnu­tækin okkar. Þegar við héldum að þetta væri að leysast, eftir framkvæmdir sem stóðu yfir, þá breyttist ekkert því hann kom aftur inn með dótið sitt og búin til önnur skrif­stofa fyrir okkur sem við deilum með öðrum. Þetta hefur mér þótt afar leiðinlegt,“ segir Benjamín.

Benjamín Hrafn Böðv­ars­son prestur. Mynd / Þjóð­kirkjan
Erla Björk Jóns­dóttir prestur. Mynd / Þjóð­kirkjan

Benjamín ítrekar að fátt hafi breyst í stöðunni þrátt fyrir kvartanir til bæði sóknar­nefndar og biskups. Öllu verra þykir honum þó að fráfar­andi sóknar­presturinn hlaupi enn til flestra embættis­verka í bænum. „Staðan er því miður sú að hann jarðar meira en við prestarnir. Við höfum reynt allt hvað við gátum til að leysa þetta með skrif­stofuna og nú er boltinn hjá Biskups­stofu,“ segir Benjamín.

Davíð, fráfar­andi sóknar­prestur, viðurkennir aðspurður að hafa enn aðstöðu á sjálfri presta­skrif­stofunni. Hann bendir á að það sé með leyfi sóknar­nefndar og að það sé ekkert rangt við að hann sinni prest­embættum áfram. „Það er bara þannig að allir emerítar hafa heimild til að embætta. Í þeim tilvikum sem maður er á staðnum eða beðinn um verkið þá hef ég það leyfi. Frá mínum bæjar­dyrum séð er ekkert sem varnar þeim að komast inn á skrif­stofuna. Ég hef haft heimild sóknar­nefndar til að vera þarna og hafa aðgang að kirkjunni ef ég er beðinn um að þjónusta eitthvað,“ segir Davíð.

Á endanum verður það líklega Agnesar M. Sigurðar­dóttur biskups að leysa presta­deiluna á Eskifirði því málið er að minnsta kosti komið inn á hennar borð eftir að Benjamín og Erla sendu þangað inn erindi fyrir nokkrum vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim