Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Þórunn og dóttir hennar hættar varaþingmennsku fyrir Flokk fólksins – Tengjast báðar hrossamálinu

Þórunn Björg
Þórunn Björg Mynd: Flokkur fólksins

Oddviti Flokks fólksins í Norðvestur­kjördæmi segir alla í flokknum í sjokki yfir tengslum vara­þingmanns hans við meint dýraníð í Borgar­firði.

Vísir hafði það eftir Ingu Sæland, formann Flokks fólksis, að henni hefði blöskrað tengsl hennar við dýra­níðsmálið og beðið hana að stíga til hliðar, sem hún hafi gert. Vara­þing­maðurinn, Þórunn Björg Bjarna­dóttir, landbúnaðar­verkakona skipaði annað sæti lista flokksins í Norðvestur­kjördæmi í Alþingis­kosningunum í fyrra­haust.

Eyjólfur Ármannsson er oddviti flokksins í Norðvestur­kjördæmi en hann segir að bæði Þórunn og dóttir hennar, Jenný Ósk Vignis­dóttir, sem skipaði 9. sæti flokksins í síðustu kosningum, hafi sagt sig frá vara­þingmennsku vegna tengsla við meint dýrníð í Borgar­firði.

„Hún sagði af sér vara­þingmennsku. Og Jenný Ósk, dóttir hennar sagði sig úr flokknum líka, vegna tengsla við málið,“ sagði Eyjólfur í samtali við Mannlíf en hann hafði þá ekki séð frétt Vísis um að Þórunni hefði verið beðin að hætta vara­þingmennsku. „Þetta var gríðar­lega mikið sjokk fyrir okkur sko. En ég hef ekki heyrt það að hún hafi verið rekin en það var talað við Þórunni og svo var skrifað undir uppsögn uppi á Akranesi, sem verður svo send til þingsins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum