Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Mesti liðssafnaður frá síðari heimsstyrjöld

Úkraínskir ​​hermenn á æfingu á Yavoriv-heræfingasvæðinu, skammt frá Lviv í vesturhluta Úkraínu.
Úkra­ínskir ​​her­menn á æfingu á Yavoriv-her­æf­inga­svæð­inu, skammt frá Lviv í vest­ur­hluta Úkraínu.

Fullyrt er að Rússar séu með allt að 190.000 manna her undir vopnum við landamæri Úkraínu þegar allt er talið, þar sem miklar heræfingar hófust í dag.

Inni í þessari tölu eru vopnaðar sveitir aðskilnaðar­sinna í Donetsk og Luhansk-héruðum í austan­verðri Úkraínu, þar sem aðskilnaðar­sinnar hlið­hollir Rússum ráða ríkjum. Eru þetta sagðir mestu liðs­flutningar í Evrópu frá lokum seinni heims­styrjaldar.

Átökin á milli Rússlands og Úkraínu eiga upptök sín frá því í lok árs 2013 í kjölfar innlimunar Rússa á Krímskaga. Rússnesk stjórn­völd óttuðust að aðild Úkraínu að ESB og NATO myndi styrkja bandalag Vestur­veldanna og þar af leiðandi takmarka aðgang Rússa að Svartahafi. Viktor Janúkóvítsj, þáverandi forseti Úkraínu, tók þá ákvörðun að stöðva ætti undir­búning að innleiðingu samstarfs­samnings Úkraínu við Evrópu­sambandið. En þessi ákvörðun mætti mikilli andstöðu í samfélaginu og varð til þess að Janúkóvítsj var steypt af stóli í febrúar 2014. Samband ríkjanna hefur verið stirt síðan þá og hefur stig­magnast síðustu misseri.

Hafa sent út allsherjar herkvaðningu

Leiðtogi aðskilnaðar­sinna í Donetskhéraði í austan­verðri Úkraínu, sem heimamenn nefna Alþýðu­lýðveldið Donetsk, greindi frá því fyrir stundu að hann hefði sent út alllsherjar herkvaðningu, þar sem hann óttaðist að stríðs­átök væru í þann mund að brjótast út í landinu. Starfs­bróðir hans í Luhanskhéraði gaf út sambærilega tilskipun skömmu síðar.

Í ávarpi sem kvik­myndað var og sent út á samfélags­miðlum og í sjónvarpi hvatti Denis Pushilin forseti alþýðu­lýðveldisins landa sína sem skráðir eru í þjóð­varðliðið til að mæta á herkvaðningar­skrifstofur landsins, þar sem hann væri búinn að undirrita tilskipun um almenna herskyldu.

Skömmu síðar sendi Leonid Pasechnik, leiðtogi nágranna­héraðsins Luhansk, frá sér sambærilega tilskipun og yfir­lýsingu þar um. Þar ráða aðskilnaðar­sinnar líka ríkjum og kalla héraðið Alþýðu­lýðveldið Luhansk.

Á sama tíma hvetja yfirvöld í báðum héruðum almenning og sérstak­lega fólk með rússneskt ríkisfang til að forða sér yfir til Rússlands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum