Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Yfirlýsing Steingríms Sævarrs vegna ruslatunnustríðs: „Í atburðarásinni ræður heil hugsun ekki för“

Stein­grímur Sævarr Ólafsson, almanna­tengill hefur gefið út yfir­lýsingu á vefmiðli. Mannlíf hefur fjallað um málið á síðastliðnum dögum eftir að Hanna Kristín Skafta­dóttir birti myndskeið á fébókar­síðu sinni. Mynd­skeiðið sýnir Steingrími flytja rusla­tunnur fyrir bifreið hennar.

Í tvígang hafði blaða­maður á vegum Mannlífs samband við Steingrím og gefið honum færi á að ræða sína hlið á málinu, sem hann afþakkaði. Í nýút­kominni yfir­lýsingu segir Stein­grímur að fjöldi atriða vanti upp á útgefnu myndbandi. Þá hafi hann verið að færa rusla­tunnurnar á sinn stað eftir að nágranna­konan hafi komið þeim fyrir fyrir framan útidyra­hurð neðri hæðarinnar auk þess að hafa sent honum fingurinn: „Mér blöskraði auðvitað yfir­gangurinn og ofbeldið en gerði þó ekki annað en að færa tunnurnar á sinn stað.“

Hér má sjá afrit af yfir­lýsingu Steingríms Sævarrs í heild:

Upptakan úr „falinni myndavél“ eins íbúans þar sem ég er að færa rusla­tunnur er stutt í annan endann. Sem sagt klippt þannig að einungis sést þegar ég færi þær allar út í miðja innkeyrsluna til þess svo að fara með þær í næsta áfanga á sinn hefð­bundna stað við innkeyrslu­vegg. Nágranna­konan og „upptak­arinn“ hafði – og ekki í fyrsta sinn – raðað þeim fyrir framan tröppur að útidyrum íbúðar á jarðhæð og að auki rifið niður og skemmt jóla­skreytingar við húsvegginn. Þegar ég steig út úr bílnum á aðfangadags­morgun stóð hún við gluggann, sendi mér fingurinn og storkaði með öðru fingra­tengdu táknmáli. Mér blöskraði auðvitað yfir­gangurinn og ofbeldið en gerði þó ekki annað en að færa tunnurnar á sinn stað.

Ég vil taka það skýrt fram að þessi viðbrögð mín, að fjarlægja tunnurnar frá útidyrunum þegar ég kom að húsinu, voru alfarið mín ákvörðun. Þessi sérstak­lega tilklippti partur af upptökunni afsannar að mínu mati kenninguna um að ein mynd segi meira en þúsund orð. Þvert á móti getur hún með svona misnotkun afbakað allan sannleika.

Vonandi er að þeir sem vilja skoða þessar lang­varandi erjur, hvað þá að taka afstöðu, kynni sér málavöxtu og þá ekki síst hvaðan frumkvæði þessara uppþota kemur. Í leiðinni gætu þeir e.t.v. reynt að átta sig á því hvers vegna aldrei hefur komið til afskipta lögreglu vegna þeirra stóru ásakana sem settar hafa verið fram af hálfu þess sem skreytir glugga­kistur sínar, dyr og útveggi með upptöku­myndavélum um langt árabil. Það er nefnilega nokkuð ljóst að í atburða­rásinni ræður heil hugsun ekki för.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna