Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ólöf hefur unnið fyrir sínu: „Ekki eins og ég fái núna allt upp í hendurnar“

Helga Braga ræddi lífið og tilveruna í viðtali –
Helga Braga ræddi lífið og til­ver­una í við­tali – Mynd: Skjáskot úr Topp 10 möst

Ólöf Birna Torfa­dóttir, leik­stjóri og handrits­höfundur, er byrjuð í tökum á annari kvikmynd sinni.

Ein af vonar­stjörnum íslenska kvikmynda­bransans, hún Ólöf Birna Torfa­dóttir, er nýbyrjuð í tökum á sinni annari kvikmynd. Ólöf sem skrifaði og leik­stýrði kvik­myndinni Hvernig á að vera Klassa Drusla, sem kom út árið 2021, hefur mörg járn í eldinum þessa stundina. Nýja mynd hennar heitir Topp 10 Möst og verður fróðlegt að sjá hvort að hún slái í gegn hjá þjóðinni eins og fyrsta mynd hennar gerði.

„Í stuttu máli fjallar myndin um Örnu, konu á sextugsaldri, sem er orðin frekar stöðnuð í lífinu og allir dagar virðast eins. Á sama tíma kynnumst við Mjöll sem er þrítugur fangi sem stans­laust virðist koma sér í vandræði,“ sagði Ólöf um söguþráð myndarinnar. „Dag einn ákveður Arna að grípa til róttækra aðgerða, hoppar upp í bíl og leggur af stað í ferðalag þar sem hún hyggst ætla að fylla út óskalista yfir hluti sem hún hefur aldrei gert áður og langar að enda á Aust­fjörðum þar sem hún hefur aldrei komið þar áður. Á sama tíma fær Mjöll þær fréttir í fangelsinu að barns­faðir hennar sem býr á Egils­stöðum vill að nýja konan hans ættleiði dóttur þeirra. Mjöll flýr því úr fangelsinu og á bensínstöð á leið út úr bænum finnur hún sér far í bíl Örnu. Þær stöllur verða svo óvanalegt vinapar og saman ferðast þær þvert yfir landið og fylla út topp 10 möst listann,“ en aðal­leikarar myndinnar eru Helga Braga Jóns­dóttir og Tanja Björk Ómars­dóttir. Með þeim eru svo Björn Ingi Hilmarsson, Jóhanna Vigdís Arnar­dóttir, Orri Huginn Ágústsson og Ólafía Hrönn Jóns­dóttir.

Ólöf Birna Torfa­dóttir –

En hvað er við þessa sögu sem heillar Ólöfu svo mikið?

„Það sem heillar mig mest er sagan, hversu margþátta hún er, snertir á ýmsum málefnum sem kannski er ekki oft talað sérstak­lega mikið um, sem eru samt málefni sem flestir tengja við á einn eða annan hátt. Mér finnst heillandi hvað karakterarnir eru mannlegir, hversu auðvelt er að tengja við þá. Þrátt fyrir óhefðbundnar aðstæður þá meikar þeirra vinátta svo mikið sens. Ég elska söguna þeirra á milli og tenginguna sem þær mynda og hvað þær verða fyrir hvor aðra.“

Ólöf sem er að gera sína aðra kvikmynd í fullri lengd segir mikinn mun vera á að gera stuttmynd og kvikmynd í fullri lengd en hún hafi lært mikið við gerð fyrstu myndarinnar. „Það er heilmargt sem maður lærir á að vinna svona stórt verkefni. Kannski einna helst það sem ég tek út úr þeirri reynslu og reyni að nýta í næstu verk er að gleyma sér ekki í öllu umstanginu,” segir leik­stjórinn um málið. „Að vera á staðnum líka og njóta. Það er ótrúlega gaman að búa til bíó og það má alveg njóta þess og hafa gaman af, ég vil geta gert meira af því, farið frá „settinu“ með góðar minningar og hlýju í hjarta að þarna hafi orðið dásamleg fæðing á því sem við sjáum svo í bíó seinna.“

Tanja Björk Ómars­dóttir leikur aðal­hlut­verk á móti Helgu Brögu

„Að hafa gert Klassa Druslu vissulega opnaði einhverjar dyr,“ sagði Ólöf um hvort að líf hennar hafi breyst mikið eftir að Hvernig á að vera Klassa Drusla kom út. “Þá hafði maður sannað að maður kynni og gæti gert bíómynd sem varð alveg frekar vel sótt, sérstak­lega miðað við Covid aðstæður og takmarkanir á þeim tíma sem hún var í bíó. Á sama tíma er ég frekar ný í þessu hlutverki í kvikmynda­iðnaðinum, það er ekki eins og ég fái núna allt upp í hendurnar eins og mér hentar, langt því frá. Maður er alltaf að sanna sig og bæta. Topp 10 Möst er gríðar­lega stórt tækifæri fyrir mig og aðra í „crewinu“ til að sýna okkur og sanna enn og aftur hvers megn maður er og að hér sé ég komin til að vera.“

En hver er munurinn á Topp 10 Möst og Klassa Druslu? „Topp 10 Möst er töluvert stærri fram­leiðsla en Klassa Drusla var. Topp 10 er styrkt af Kvikmynda­sjóði, Myrkva­Myndir og KISI production eru að framleiða myndina saman. Á meðan Klassa Drusla var alveg „low low budget“ mynd og hlutirnir unnir eftir því. Til dæmis tökustíll, í Klassa Druslu var lítið rými fyrir tæki og tól svo hún var mest öll tekin „handheld“. Klassa Drusla var ótrúlega skemmtilegt verkefni, frekar súr ýktur húmor og frábær fyrir það sem hún er. Topp 10 Möst er vissulega gamanmynd, aðeins jarð­bundnari og mér persónu­lega finnst sagan sterkari og karakterar þroskaðari, en það er líka bara af því maður er alltaf að bæta sig og verða betri og vonandi verður það alltaf þannig að næsta verkefni verði betra en það fyrra.“

Ólöf er fyrr­verandi nemandi Kvikmynda­skóla Íslands en nemendur skólans hafa undan­farin ár verið að sækja í sig veðrið og verið meira og meira í sýnilegri í kvikmynda­bransanum.

„Mér finnst frábært að fleiri og fleiri úr Kvikmynda­skólanum eru að vinna á „settum“. Mín upplifun á skólanum var geggjuð, ég kom þarna inn eins og svampur og saug í mig allar upplýsingar frá fólki sem var heitt inn í bransanum á þeim tíma. Það er það sem mér finnst best við Kvikmynda­skólann er að leið­beinendur eru fólk sem er akkúrat í dag að vinna í sjónvarpi eða bíó, kennslan er alltaf fersk og í takt við nútímann. Ég hef verið það heppin líka að fá að kenna handrit fyrir nemendur á framleiðslu­deild í þrjár annir núna. Ég heyri mismun­andi sögur af orðspori frá skólanum en fyrir mér er þetta „super“ einfalt: Ef þú vilt læra og í alvöru gera þetta að ferli þá mun þessi skóli nýtast þér heilan helling. Ef þú ert þarna af einhverjum öðrum ástæðum þá færðu ekkert út úr því.“

„Ég er í handrits­teymi með þremur öðrum handrits­höfundum í þáttaröð sem Glassriver er að framleiða. Það verkefni er áætlað í sjónvarp fyrripart næsta árs,” sagði Ólöf um hvað væri svo næst á dagskrá þegar tökum lýkur. “Svo er ég og Hrafnkell Stef­ánsson að vinna saman að mjög svo spennandi þáttum sem heita Eigin­konur Íslands, en það verk hefur þegar hlotið fyrsta styrk handrits frá Kvikmynda­sjóði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt