Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Vilhjálmur prins hló að eigin nafnahugmyndum fyrir Georg prins

Ný bók veitir innsýn inn í fjöl­skyldulíf krónprinsins og eiginkonu hans

Vilhjálmur prins með Karlottu og Georg
Vil­hjálmur prins með Karlottu og Georg Krón­prins­inn á víst til að vera nokkuð fynd­inn Mynd: OLI SCARFF / AFP

Vilhjálmur prins hefur upplýst að hann hafi sett fram óvenjuleg og óhefðbundin nöfn þegar kom að því að nefna fyrsta barn sitt, erfingja bresku krúnunnar. Vilhjálmur prins og eiginkona hans Katrín eignuðust soninn Georg árið 2013, en mánuðina fyrir fæðingu hans veltu þau fyrir sér fjölda nafna.

Þetta kemur fram í nýrri ævisögu, William and Catherine: The Intimate Inside Story, eftir konunglega ritstjóra The Mirror, Russell Myers. Þar segir að hjónin hafi „varið klukku­stundum“ í að rannsaka möguleg nöfn, og að Vilhjálmur hafi oft komið með afar óvæntar uppástungur.

Bókin, sem byggir á einkaréttar­samtölum við fólk innan hallarinnar, varpar nýju ljósi á stórar stundir í lífi hjónanna. Ein sú stærsta var þegar þau stigu út á tröppur St Mary’s-sjúkra­hússins í Lundúnum og kynntu frumburð sinn fyrir heiminum.

Samkvæmt bókinni hófu Vilhjálmur og Katrín að undirbúa komu barnsins þegar Katrín var komin fimm mánuði á leið og ákváðu að halda kyni barnsins leyndu fram að fæðingu. Þau keyptu því barna­vörur í hlut­lausum litum. Hins vegar reyndist erfitt að komast að samkomu­lagi um nafn.

Myers skrifar að Katrín hafi helst viljað nafnið Alexander fyrir dreng eða Alexandra fyrir stúlku, sem var einnig millinafn Elísabetar drottningar. Vilhjálmur hafi hins vegar í einrúmi lýst yfir ósk um að eignast stúlku og viljað heiðra móður sína, Díönu prinsessu, með milli­nafni.

Samkvæmt heimildum bókarinnar skiptist Katrín á hugmyndum við vinkonur sínar sem nýlega höfðu eignast börn. Vinur gaf þeim jafnframt bók með barna­nöfnum, sem þau flettu í klukku­stundum saman, oft með hlátra­sköllum þegar annað hvort þeirra kom með „enn furðulegri uppástungu“.

Konunglegar heimildir segja að Vilhjálmur hafi jafnvel byrjað fundi með fjölmiðla­teymi sínu á að kasta fram nöfnum á borð við: „Hvað finnst ykkur um Rodney fyrir strák, eða kannski Graham?“, áður en hann sprakk úr hlátri.

Þrátt fyrir grín og óhefðbundnar hugmyndir valdi Vilhjálmur að lokum hefð­bundnari leið. Hann hafði tvö nöfn á lokastigi fyrir son sinn: Georg og Lúðvík en fullu nafni heitir prinsinn ungi Georg Alexeander Lúðvík .

Ævisagan fjallar einnig um hvernig Vilhjálmur verndaði börn sín í kjölfar krabbameins­greiningar Katrínar, hvernig hjónin brugðust við opinberum ásökunum Harrý prins og Meghan Markle, og ágreining Vilhjálms við föður sinn, Karl III, vegna frænda hans, Andrew Mountbatten-Windsor (áður Andrés prins).

Russell Myers segir bókina gefa óvenju náið yfirlit yfir líf hjónanna, allt frá kynnum þeirra í St Andrews-háskólanum til dagsins í dag, og sýni hvernig þau hafi mótað sýn sína á nútímalegt konungdæmi á tímum mikilla breytinga og óvissu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu