Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Tollinum sagt að skráning kjúklings frá Úkraínu væri mistök: Yfirvöld skoða uppruna fuglsins

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

Kjúklingamál Skagfirðinga hefur tekið á sig hinar undarlegustu myndir. Esja gæðafæði, sem er í eigu Kaup­félags Skagfirðinga, flutti inn sem nemur 40 tonnum af kjúklingi, sem ýmist er sagður vera frá Litháen eða Úkraínu, á seinni­hluta ársins 2022. Kjöt­markaðurinn, sem einnig tengist Kaup­félagi Skagfirðinga, flutti einnig inn kjúkling á seinasta ári, en miklu minna magni. Alls flutti Kjöt­markaðurinn inn 23 tonn á síðasta ári og í byrjun þessa árs. Guðmundur Gíslason framkvæmda­stjóri fullyrðir við Mannlíf að hluti þess magns hafi verið sannanlega frá Litháen og engin mistök gerð við skráningu.

Fyrirskipun kaupfélagsmanna

Í upphafi var innflutningur Esju merktur Úkraínu sem uppruna­landi, sem þýddi að hann hefði verið toll­frjáls og sparast 25 milljónir króna á 40 tonna innfluningi Esju. Toll­stjóra var fljótlega tilkynnt að fyrir mistök hefði kjúklingurinn verið skráð sem úkraínskur en hann væri í raun frá Litháen. Heimildir Mannlífs herma að þetta hafi gerst vegna óánægju íslenskra kjúlingabænda sem töldu óeðlilegt að fyrirtæki í þeirra eigu væri að vinna gegn hagsmundum eigenda sinna og flytja inn toll­frjálsar erlendar lanbúnaðar­afurðir og setja heima­markaðinn á hvolf. Það varð því úr að Þórólfur Gíslason og stjórn hans í KS fyrir­skipuðu dóttur­félagi sínu að halda sig við það að innflutningurinn kæmu frá Litháen og afsala sér toll­fríðindunum sem eru yfir 600 krónur á kíló.

Mistökum lýst

Kjúklingur frá Úkraínu hefði þurft að fara í gegnum áhættumat þar sem þetta væri í fyrsta sinn sem slíkur innflutningur ætti sér stað frá því landi. Slíkt mat fór ekki fram þótt umræddur kjúklingur kæmi frá Úkraínu. Hann fór inn á íslenskan markað undir því flaggi að hann kæmi frá Litháen og hefur þegar verið seldur og innbirtur. Esjumenn báru því við að það hafi verið einföld mistök að merkja fuglinn frá Úkraínu og báðu um leið­réttingu sem jafnframt fól í sér að fyrir­tækin þurftu að greiða himinháa tolla og álag. Eftir stendur að kjúklingurinn frá Úkraínu fór á íslenskan markað án áhættu­matsins. Það mál getur varðað við lög er til skoðunar hjá Matvæla­stofnun og Tollinunm.

Toll­stjóri er í þeirri einkenni­legu stöðu að farið var fram á leið­réttingu sem felur í sér tugmilljóna­gjöld innflytjendanna í ríkis­kassann. Ef embættið kemst að þeirri niður­stöðu að kjúklingurinn hafi í raun verið frá Úkraínu þá þarf væntanlega að endur­greiða innflytjendum hina háu tolla og álögur. Mannlíf hefur heimildir fyrir því að embættið sé með innflutning á kjúklingi frá Úkraínu á árinu 2022 til skoðunar. Þá er Matvæla­stofnun einnig að fara í gegnum málin sín megin.

Kjarni málsins liggur í þeirri spurningu hvort um mistök hafi verið ræða eða yfirklór sem endaði með hálf­gerðum ósköpum. Ef á daginn kemur að „mistökin“ voru ekki til staðar og kjúklingurinn í raun frá Úkraínu þá liggur fyrir lögbrot um ranga skráningu og að hafa flutt inn vöru sem ekki hafði gengið í gegnum áhættumat.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim