Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sólveig Anna er ævareið: „Ætla að ráðast á félagsfólk Eflingar með fordæmalausri heift og tryllingi

Sólveig Anna Jónsdóttir. Mynd/Lára Garðarsdóttir
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

„Við munum berjast gegn glæp­samlegu verkbanni SA af öllu afli. Við hefjum aðgerðir gegn því á hádegi á fimmtudag og höldum þeim áfram eins lengi og þarf,“ skrifar Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar um yfir­vofandi aðgerðir Samtaka atvinnu­lífsins sem eiga að hefjast eftir þrjá daga.Harðar deilur standa um verk­bannið. Alþýðu­samband Íslands telur aðgerðina vera ólöglega þar sem atkvæða­greiðsla nær ekki aðeins til Eflingar­félaga heldur allar aðildar­félaga. ASÍ hefur vísað málinu í Félagsdóm.Sólveig segir að á fimmtudaginn renni upp nýr kafli í sögu landsins.„Þá ætla Samtök atvinnu­lífsins að ráðast á félags­fólk Eflingar með fordæma­lausri heift og tryllingi vegna þess að forysta SA getur ekki gert kjara­samning við Eflingu. Í stað þess að mæta hófstilltum kröfum Eflingar af sanngirni vill íslensk auðstétt frekar í bræði sinni beita 20.609 einstaklinga grófu efnahags­legu ofbeldi og reka fólk launa­laust heim,“ skrifar hún á Facebook.

Röfl fáfræðings

Sólveig Anna sendir ríkis­stjórninni pillu og segir það magnaða staðreynd að enginn úr liði ríkis­stjórnarinnar hafi neitt að segja um þann grófa og skelfi­lega efnahags­lega glæp sem felist í aðgerð Samtaka atvinnu­lífsins.„Enginn hefur neitt út á það að setja að ráðast skuli að fólkinu sem knýr hér áfram hagvöxtinn, heldur öllu gangandi, greiðir skatta, svo að stjórnmála­stéttin geti lifað í vellystingum. Ekki orð. Annað en röfl fáfræðingsins um að ekkert sé nauðsynlegra en að breyta vinnu­löggjöfinni svo að treysta megi í sessi einræðis­stöðu ríkis­sátta­semjara. Hefur hnignun stjórn­málanna nokkru sinni verið jafn hræðilega ljós og nú?“ spyr Sólveig Anna og heitir því að Eflingar­fólk muni beita sér af hörk þegar og ef til verkbanns kemur.„Ef að einhver manneskja heldur að Efling ætli að taka árás SA þegjandi og hljóða­laust þá er það mikill misskilningur. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að sýna og sanna að við höfnum ofríki auðvaldsins og getuleysi stjórn­málanna. Við munum aldrei gefast upp fyrir ofbeldi og ógnar­stjórn“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim