Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

18 ára gift í Bandaríkjunum – Þriðji partur

Síðast endaði ég á að segja ykkur frá því þegar ég komst að fram­hjáhaldi míns fyrr­verandi  eigin­manns og ofbeldinu sem gekk á í hjóna­bandi okkar.

Fyrri frásögn lauk þegar hann hvarf í enn eitt skiptið. Hvert fór hann? Jæja, sagan sem mér var sögð var lyginni líkust  –  enda örugglega lygi. Það var að morgni þegar hann loks kom heim í sömu  fötunum og þegar hann fór, ég viti mínu fjær af áhyggjum og spurði hann  hvert hann hafi farið og hvar hann hefði verið? Hann svarar mér að hann hafi verið settur í flugvél og flogið með hann og restina af herdeildinni út í miðja eyðimörk og hlutirnir sem hann hafi séð væru ógeðs­legir.

Hann segir mér að það sé verið að gera rann­sóknir á fólki með því að blanda saman dýrum og mönnum og hann hafi séð alls kyns hluti sem væru of hryllilegir til að útskýra fyrir mér. Hann segir mér að herdeildin hafi verið í sérstakri þjálfun varðandi að vernda þetta og einnig í þjálfun við hylma yfir kjarnorku­vopnum. Ég var 18 ára og gleypti við þessu eins og ekkert væri en svaf ekki vel svo vikum skipti að ímynda mér að þetta úrkynjaða „fólk“ myndi sleppa.

Þegar þarna er komið við sögu er að  nálgast jól og minn fyrr­verandi stingur upp á því að við fengjum meðleigjanda til að flytja inn með okkur því það væri svo dýrt að leigja bara við tvö, þrátt fyrir að herinn væri að greiða meirihluta leigunnar. Ég samþykki það en þó með trega, þar  til að hann nefnir nafn á stúlku sem var vinkona mín. Þá segi ég honum að ég sé sátt við það.

Hún byrjar að hanga með okkur alla daga en flytur ekki inn. Mig fer að gruna að það sé eitthvað  á milli þeirra því hún var allt í einu orðin svo skrítin í kringum okkur. Ég geng á hann með það og  hann sver við líf sitt að það sé ekkert í gangi en ég bara vissi það, annað gat ekki verið.

Nokkrum dögum seinna er málefnið farið af borðinu varðandi meðleigjanda og hún hætt að umgangast okkur. Jólin líða og ég fer að ókyrrast og langar að fara í heimsókn til vinkonu  minnar sem bjó í öðru fylki. Um leið og ég nefndi það var hann til í að kaupa miða. Enginn miði  var keyptur til baka enda trúði ég honum þegar hann sagði mér að það væri bara best að kaupa  miða með stuttum fyrirvara.

Þegar ég vildi koma heim – ég fer í byrjun janúar 2001. Það var í síðasta skiptið sem ég sá hann þegar hann kvaddi mig á flug­vellinum. Ég lendi í Nebraska og vinkona mín tekur á móti mér á flug­vellinum og mikið var gaman hjá okkur þessa viku sem ég hafði hugsað mér að vera. Svo hringi ég í minn fyrr­verandi og bið hann að kaupa miða fyrir mig heim, hann svarar mér með því að það sé ekki til peningur fyrr en um mánaðarmót. Jæja, ég tala við vinkonu mína og hún er bara ánægð með meiri tíma með mér og ég hringi í vinnuna og segi þeim frávþví að ég verði lengur en ég hélt að allir væru sáttir.

Hægt er að lesa restina af þessari flottu lífs­reynslusögu í nýjasta tölublaði Mannlífs en það er hægt akkurat hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja