Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Drukkinn lögreglumaður á vettvangi banaslyss ekki ákærður: „Staðfestu að maðurinn var ölvaður“

Árið 2007 var hátt­settur lögreglu­maður á Akureyri grunaður um að hafa komið ölvaður á vettvang banaslyss.

Í blóðprufu kom í ljós að maðurinn hafði neytt áfengis en hann hélt því fram að hafa drukkið pela af sterku víni áður en prufan var tekin, hann hafi ekki keyrt lögreglu­bifreið drukkinn.

Ríkis­saksóknari ákvað að ákæra manninn ekki en hann starfaði sem yfirmaður rannsóknar­deildar hjá lögreglunni á Akureyri.

„Hann var hvorki á vakt né á bakvakt en vegna alvarleika slyssins þótti rétt að kalla til rannsóknarlögreglumann og brást hann við þeirri beiðni þó hann hefði hæglega getað neitað.

Hann kom akandi á sínum einkabíl frá Akureyri í Hörgárdalinn og hóf að rannsaka vettvang.

Vínlykt var af honum og höfðu félagar hans í lögreglunni orð á því. Hann gekk frá þeim en gaf svo öndunarsýni og var síðan færður til blóðsýnatöku.

Sýnin staðfestu að maðurinn var ölvaður og málið því sent ríkissaksóknara enda get-ur slíkt varðað við lögreglulög og almenn hegningarlög,“ sagði í frétt DV í apríl árið 2007.

Lögreglu­maðurinn sagðist hafa komið allsgáður á vettvang slyssins en drukkið vodkapela þegar störfum var lokið.

Þá hafi hann verið stöðvaður á rölti frá slys­staðnum og sýni tekið af honum sem reyndist jákvætt.

Efast var um þessa sögu mannsins, sérstak­lega í ljósi þess að ekki hafi verið auðvelt að komast í áfengi í Hörgárdal en hann sagðist fyrir tilviljun hafa verið með pelann á sér.

Ríkis­saksóknari taldi ekki næga sönnun fyrir því að maðurinn færi rangt með mál og var því ákveðið að ákæra hann ekki. Ekki var talin ástæða til þess að víkja lögreglu­manninum úr starfi.

Í frétt DV var athygli vakin á því að sambærilegt mál varð til þess að ökumaður var sektaður og sviptur ökuleyfi. Hann sagði svipaða sögu og lögreglu­maðurinn en vitnis­burður tveggja lögreglu­manna var talinn trúverðugri en sá sem ökumaðurinn gaf.

„Nærri sama röksemdarfærsla dugði ekki manni sem sviptur var ökuleyfi í eitt ár og dæmdur til að greiða 130 þúsund krónur í ríkissjóð, í Hérðasdómi Suður­lands á föstudag. Sá hélt því fram að hann hefði drukkið einn vodkapela eft- ir að akstri lauk og áður en lögregla náði tali af honum.

Dóminum þótti sú skýring mannsins ótrúverðug og tók hana því ekki til greina gegn trú- verðugum framburði tveggja lög- reglu­manna.

Mál lögreglumannsins á Akureyri fer hins vegar ekki fyrir dómstóla þar sem hann verður ekki ákærður“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim