Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Kára hent út úr búð vegna hjólastóls: „Fatlaðir verða bara að sætta sig við að þeir geta ekki allt“

Reykjavík – myndin tengist fréttinni ekki beint – Mynd / Envato Elements
Reykja­vík – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint – Mynd / Envato Elements

Kára Kárasyni var vísað út úr búð á Grens­ás­vegi í Reykja­vík fyrir það eitt að vera í hjóla­stól árið 1996

„Hann rak okkur út úr búð­inni með þeim orðum að hann kærði sig ekki um að við værum að „þvæl­ast“ þarna með hjóla­stól. Við höfum aldrei fengið svona mót­tökur áður. Ég varð svo reið að ég skalf öll. Maður er ekki að leika sér neitt með hjóla­stól, það segir sig sjálft,“ sagði Ráð­hildur Auð­uns­dóttir, eig­in­kona Kára, í sam­tali við DV um málið árið 1996 en búðin sem um ræddi hét Allt fyrir ekk­ert en hún seldi notuð hús­gögn í umboðs­sölu.

„Það var fullt af fólki inni í versl­un­inni en það sagði eng­inn neitt, það urðu allir svo hissa. Rétt áður höfðu þrír karl­menn haldið hurð­inni fyrir okkur til að við kæm­umst inn. Það fóru flestir út um leið og við,“ sagði Ráð­hildur en Kári hafði nýlega brotið á sér báða fætur þegar hann datt niður af vinnu­palli og fékk nýja sýn á raunir fólks sem not­ast alla daga við hjóla­stól.  „Aðstaðan er víða alveg hrika­leg fyrir þetta fólk, maður gerir sér ekki grein fyrir þvi fyrr en maður kynn­ist þvi af eigin raun,“ sagði Ráð­hildur.

Trausti Guð­jóns­son, eig­andi Allt fyrir ekk­ert, neit­aði fyrir að hafa vísað hjón­unum út. „Ég vís­aði henni ekki út heldur benti henni á að það væri ekki hægt að keyra hjóla­stól eða kerru inni í búð­inni því það var svo mikið af hús­gögnum inni þegar þetta var og því mjög þröngt í versl­un­inni. Fólk með kerrur rekur þær t.d. hérna utan í hús­gögnin án þess að biðj­ast afsök­unar og skemmir þar með eignir ann­arra. Þetta bitnar því allt á sak­lausu fólki,“ sagði búð­ar­eig­and­inn við DV.

„Við gerum ekki ráð fyrir kerrum eða hjóla­stólum í versl­un­inni því hús­næðið er dýrt og við reynum að nýta það til fulls. Við höfum heldur ekki það mik­inn mann­skap að við getum farið að færa til vörur þó að inn komi einn hjóla­stóll. Þetta er orðið allt of við­kvæmt mál með fatlað fólk. Fatlaðir verða bara að sætta sig við að þeir geta ekki allt. Ég get t.d. ekki stundað loft­fim­leika en sætti mig við það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Guðmundur Ingi Kristinsson sagði heildareignir tryggingafélaganna hafa numið 360 milljörðum króna í febrúar og kallaði eftir uppgjöri bótasjóða.
Pólitík

Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Innlent

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni