Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Brottreknir starfsmenn Skagans 3X sviknir um árshátíð: „Hún er ekki í boði fyrir ykkur lengur“

Sigsteinn Grétarsson er forstjóri Skagans 3X
Sig­steinn Grét­ars­son er for­stjóri Skagans 3X

Starfs­mönnum sem var sagt upp fengu ekki að koma með í árshátíðar­ferð til útlanda.

Fyrir­tækið Skaginn 3X sagði upp 27 starfs­mönnum á Ísafirði í ágúst og tilkynnti á sama tíma að starfs­stöðinni yrði lokað. Það var aðeins tíu dögum áður en starfs­menn fyrirtæksins áttu að halda í skemmtiferð til Þýska­lands. Þegar starfs­mönnum var tilkynnt að þeim yrði sagt upp var einnig tekið fram að þeir myndu ekki fá að koma með í skemmtiferðina. Mikið ósætti ríkir meðal starfs­manna fyrir­tækisins á Ísafirði með þessa ákvörðun en starfs­menn fyrirtæksins sem vinna á Akranesi og Reykjavík eru þessa stundina í ferðinni meðan Ísafirðingarnir sitja heima með sárt enni. Skaginn 3X er í eigu þýska fyrir­tækisins Baader og hefur verið í fullri eigu þess síðan í fyrra. Mannlíf ræddi við starfs­mann Skagans 3X um málið.

„Þetta er svona „worldwide“ hittingur þar sem allir starfs­menn Baader hittast. Það væri hægt að kalla þetta árshátíð Baader-samsteypunar,“ sagði starfs­maðurinn sem ekki vildi koma fram undir nafni. Þetta er í fyrsta skipti sem Baader, eigendur Skagans 3X, bjóða íslenskum starfs­mönnum sínum á þessa hátíð. Starfs­maðurinn telur að um 1500 manns séu í ferðinni.

Starfs­maðurinn greinir frá að þegar þeim var sagt upp hafi starfs­menn spurt um ferðina. „Það var spurt á fundinum, 18. ágúst, þá eru ekki nema 10 dagar í ferðina. „Hvernig er þá með ferðina, megum við þá koma?“. Þá sagði forstjórinn sem er á fundinum “„Hún er ekki í boði fyrir ykkur lengur,“ en forstjóri Skagans 3X er Sigsteinn Grétarsson.

Starfs­mönnum var sagt frá því í apríl að ferðin væri á dagskrá og hófst skráning en stóð til Baader-veldið borgaði hótel­gistingu og flug fyrir alla. „Það eru sirka fjórir mánuðir síðan við skráðum okkur. Snemma í vor var hengt upp blað, hvað yrði gert og blabla og yrði auglýst nánar síðar. Síðan kom aldrei nánar auglýst síðar til okkar, við vorum alltaf að bíða.“

„Maður er svo hissa,“ sagði starfs­maðurinn. „Ef þetta á að hafa komið frá Þýska­landi að loka á Ísafirði þá ég á erfitt með að trúa því. Að það hafi átt að fara í hagræðingu á Íslandi og þeir hafi ákveðið að loka á Ísafirði.“

En óttaðist fólk að missa vinnuna eftir að Baader keypti Skagann 3X?

„Það var eiginlega öfugt. Okkur fannst vera rosalega mikið að gera og mikil framtíðar­stefna. Mikið af verkefnum framundan, okkur var allavega sagt það á fundi síðasta sumar. Menn voru komnir yfir það að hafa áhyggjur af því að það yrði lokað. Þetta lætur mann efast um raun­verulegar ástæður uppsagnarinnar. Við megum ekki koma í ferðina, ekki út af hagræðingu heldur að þau vilja ekki fá okkur upp á móralinn. Búið að segja okkur upp „Nei, nei þau verða bara með skíta­móral, þau koma ekkert“, þannig vibe fáum við starfs­mennirnir. Af því að starfs­stöðin á Íslandi var aldrei að fara borga þessa ferð heldur höfuð­stöðvarnar úti. Þetta er allt mjög skrýtið.“

Ekki náðist í Sigsteinn Grétarsson, forstjóra Skagans 3X, við vinnslu fréttarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp