Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Valgeir Skagfjörð minnist látins vinar: „Lífið reyndist Finna mínum erfitt“

Blessuð sé minning Finna
Blessuð sé minn­ing Finna

Valgeir Skagfjörð, leikari og tónlistar­maður minnist látins vinar síns, Magnús Finn Jóhanns­sonar sem jarð­settur verður í dag.

Skrifaði Valgeir hjartnæma færslu á Facebook þar sem hann minnist Magnúsar Finns en þeir kynntust er Valgeir og félagar hans fengu hann í hljómsveit sína.

Valgeir gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta minningar­greinina í heild sinni. Hana má lesa hér fyrir neðan:

„Í dag verður Magnús Finnur Jóhannsson vinur minn kvaddur hinsta sinni. Við kynntumst fyrst þegar við vorum rétt skriðnir yfir tvítugsaldurinn. Hans var beðið með óþreyju því hann kom til greina sem söngvari í hljóm­sveitinni sem við nokkrir félagar vorum að stofna. Hann var í hljóm­sveitinni Stofnþel og fóru sögur af undra­verðum söng­hæfileikum hans. Ég hafði aldrei heyrt í honum en hafði heyrt því fleygt að hann gengi undir nafninu „Stormbringer“.

Það var spennu­þrungið andrúms­loft í bílskúrnum við Kárs­nesbraut 63 þegar hann ásamt Tryggva Hübner gítar­leikara úr Stofnþeli komu inn um dyrnar. Við vorum að æfa frumsamið lag eftir mig sem hét: „I’m a man.“ Hann kom með sinn eigin hljóðnema sem hann stakk í samband. Hann lærði lagið á ljóshraða og röddin hans fór laginu vel. Æfingin gekk svo vel að það var ákveðið að hljóm­sveitin skyldi formlega verða skipuð þessum fimm einstaklingum sem þarna voru saman komnir. Hann var sannarlega „Stormbringer“. Við Finni (eins og hann var alltaf kallaður) náðum vel saman og hann var eins og fæddur til að syngja lögin mín og öll hin sem okkur langaði til að hafa á efnis­skránni. Tveimur mánuðum síðar vorum við tilbúnir að koma fram opinber­lega og það átti sér stað sprenging. Hljóm­sveitin Cabaret leit dagsins ljós og var kosin „Bjartasta vonin“ það ár og Finni kosinn efnilegasti söngvarinn í bransanum. Honum skaut upp á stjörnu­himininn með stórum hvelli.Það er margs að minnast frá þessum árum en mest um vert er sú vinaátta og þau sérstöku tengsl við Finni áttum. Þau vináttu­bönd héldust lengi og hann kom til okkar í hljóm­sveitina Tíbrá frá Akranesi mörgum árum síðar og þar áttum við gott tímabil líka. Við tókum upp plötu með lögum eftir mig og náðum vel saman eins og forðum. En síðan skildi leiðir og Finni vinur minn átti eftir að kneyfa ört sitt ljúfa líf á meðan ég sagði skilið við Bakkus og það slaknaði á vináttu­böndum okkar. Lífið reyndist Finna mínum erfitt þrátt fyrir allar þær góðu gjafir sem hann hafði hlotið í öndverðu. Hann háði harða baráttu við alkóhólisma og mikið sem hann reyndi að komast inn á rétta braut. Ég get því miður ekki fylgt honum síðasta spölinn en hugur minn dvelur við góðu minningarnar og sá músíkalski drengur sem Finni var á sinni tíð er nú lagður af stað í sína hinstu ferð í þessari jarðvist og megi allar góðar vættir fylgja honum hvert svo sem hún liggur. Eftir sitja alls konar stef og laglínur og hljómur söng­raddar hans verður ávallt í minni mér.

Ég sendi ættingjum hans og afkomendum mínar innilegustu samúðar­kveðjur. Bless Finni minn og takk fyrir allar góðu stundirnar.“

Mannlíf vottar einnig vinum og vanda­mönnum Finna samúð sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim